Samsett/Skessuhorn.

Sameina Landgræðsluna og Skógræktina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ákvörðun sína um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.\r\n\r\nRáðherra skipaði starfshóp í maí síðastliðnum sem falið var að greina rekstur stofnananna tveggja, eignaumsýslu og samlegð faglegra málefna auk þess að vinna áhættugreiningu vegna mögulegrar sameiningar. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni í byrjun október og kemur þar fram að stærstu tækifærin með sameiningu stofnananna felist í aukinni samlegð í stoðþjónustu. Einnig sé mikil samlegð í verkefnum eins og loftslagsbókhaldi, endurheimt birkiskóga, fræframleiðslu, landupplýsingum og ráðgjöf til bænda og landeigenda um landnýtingu og landbætur.  Í ágúst síðastliðnum gaf ráðherra út fyrstu heildarstefnuna í landgræðslu og skógrækt, auk aðgerðaáætlunar og ber hún nafnið <em>Land og líf. </em>Segir í tilkynningunni að niðurstaða starfshópsins samræmist vel þeirri áætlun.\r\n\r\nVið sameiningu munu allir starfsmenn flytjast yfir í nýja stofnun og segir að áhersla verði lögð á að fyrirliggjandi mannauður og þekking haldist innan þeirrar stofnunar en hún mun hafa um 130 stöðugildi. Þá segir jafn framt að aðalskrifstofa stofnunarinnar geti verið staðsett á öllum meginstarfsstöðvum og ekki er gert ráð fyrir því að forstöðumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu, hvað svo sem það þýðir.\r\n\r\n„Það er tilhlökkunarefni að hægt verði að samnýta þá þekkingu og þann mannauð sem þessar stofnanir búa yfir. Framundan er spennandi verkefni, að koma á fót öflugri stofnun sem mun fóstra eina af okkar stærstu auðlindum, hlúa að henni og vernda fyrir komandi kynslóðir,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra en áætlað er að frumvarp um sameiningu stofnananna verði lagt fram á Alþingi í febrúar 2023.\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Sameina Landgræðsluna og Skógræktina - Skessuhorn