Falleg börn að leik. Ljósm. Úr safni.

Heimagreiðsla vegna ungbarna 12 mánaða til 3ja ára í Eyja- og Miklaholtshreppi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Foreldrar og forráðamenn barna í Eyja- og Miklaholtshreppi eiga þess nú kost að fá heimagreiðslur vegna barna sinna. Er það samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar frá 22. september s.l. Hægt er að sækja um greiðslur frá 12 mánaða aldri barns þar til að það hefur leikskólavist eða verður 3ja ára. Hámarksupphæð greiðslu er 90.000 kr. á mánuði fyrir hvert barn og greiðslur eru bundnar því að það sé með lögheimili og aðsetur í sveitarfélaginu. Þeir sem eiga af einhverjum ástæðum ekki rétt á fæðingarorlofi í 12 mánuði geta sótt sérstaklega um að fá greiðslu frá 6 mánaða aldri barnsins. Greiðslur fást að hámarki greiddar í 11 mánuði á ári og falla niður þegar barn nær 3ja ára aldri eða hefur dvöl á leikskóla. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hreppsins, eyjaogmikla.is.",
  "innerBlocks": []
}
Heimagreiðsla vegna ungbarna 12 mánaða til 3ja ára í Eyja- og Miklaholtshreppi - Skessuhorn