Fréttir

true

Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi

Þessa vikuna er opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi.  Þá fellur hefðbundin kennsla niður en nemendur skrá sig á alls kyns smiðjur, fyrirlestra og skemmtilegheit. Flestar smiðjurnar eru einungis ætlaðar nemendum skólans og t.d. geta söngnemendur skráð sig á ukulelenámskeið og gítarleikarar á söngnámskeið, það verða trommuhringir, spurningakeppnir, kór, tónsmíðakennsla og margt fleira og allir…Lesa meira

true

Ekki pláss fyrir dósatalningarvélar á Sólbakka í Borgarnesi

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar þriðjudaginn 4. október kom fram að Vinnueftirlitið hafi úrskurðað dósatalningarvélar sem voru í notkun í dósamóttökunni í Brákarey nothæfar með ákveðnum öryggisuppfærslum. Í núverandi aðstöðu dósamóttökunnar á Sólbakka er ekki pláss til að nota vélarnar. Endurvinnslan telur óheppilegt að ekki sé hægt að taka við ótöldu og hefur rætt að Borgarbyggð…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í kaflaskiptum leik

Fjölnir og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Skallagrímur var án sigurs eftir fyrstu tvo leikina í deildinni á meðan Fjölnir var með einn sigur og eitt tap. Skallagrímsmenn mættu afar grimmir til leiks og komust í 0:13 eftir fjögurra mínútna leik.…Lesa meira

true

Skagamenn lögðu Hamar að velli

ÍA og Hamar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta, gestirnir þó ívið sterkari og náðu mest níu stiga forystu áður en heimamenn komu til baka og löguðu stöðuna aðeins fyrir lok leikhlutans, staðan 23:27 fyrir…Lesa meira

true

Skagamenn halda í vonina um að halda sér uppi

ÍA og Fram mættust í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Akranesvelli. Skagamenn þurftu á sigri að halda til að eiga von um sæti í Bestu deildinni að ári á meðan Fram siglir lygnan sjó í deildinni. Skagamenn komust yfir eftir korters leik þegar Eyþór Aron Wöhler…Lesa meira

true

Leggja grunn að fagháskólanámi í leikskólafræðum

Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Guðmundur Ingi Guðbrandsson hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólafræðum á landsvísu. Auk ráðuneytanna koma Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Samband íslenskra sveitarfélaga að yfirlýsingunni, en markmið hennar er að efla menntun starfsfólks leikskóla um land allt. “Fagháskólastig í leikskólafræðum er spennandi valkostur…Lesa meira

true

Metabolic stöð í Borgarnesi hefur verið opnuð

Metabolic Borgarnesi er ný líkamsræktarstöð sem opnuð var í Brákarey laugardaginn 1. október en stöðin er til húsa við Brákarbraut 18. Metabolic stöðin er hugarfóstur Bryndísar Birgisdóttur og Inga Gunnars Kristbergssonar. Bryndís er einkaþjálfari að mennt en hún kennir í Metabolic æfingakerfinu. Æfingarnar eru á mismunandi erfiðleikastigum og ættu tímarnir því að henta flestum en…Lesa meira

true

„Eina leiðin til að fá stráka í íþróttina er að þetta sé kúl og lúkki skemmtilegt“

Rætt við fimleikamanninn og heimsmethafann Helga Laxdal Aðalgeirsson Helgi Laxdal Aðalgeirsson hefur keppt fyrir Íslands hönd á fimm Evrópumótum í fimleikum, bæði í blönduðu liði og drengja- og karlaliði. Þá hefur hann fjórum sinnum keppt með Stjörnunni á Norðurlandamóti. Á EM 2021 setti hann heimsmet þegar hann tók og lenti stökk sem enginn annar hefur…Lesa meira

true

Æfðu reykköfun um borð í varðskipinu Þór

Varðskipið Þór kom í gærkvöldi og lagðist að Sementsbryggjunni á Akranesi. Erindið var að nota skipið til að Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar gæti æft reykköfun um borð í því. Slökkviliðsmenn voru að störfum í skipinu frá klukkan 9-12 í morgun. Áætlað er að skipið haldi úr höfn síðar í dag. Nánar í næsta Skessuhorni.Lesa meira