Bryndís leiðbeinir í stöðinni. Ljósm. sþ

Metabolic stöð í Borgarnesi hefur verið opnuð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Metabolic Borgarnesi er ný líkamsræktarstöð sem opnuð var í Brákarey laugardaginn 1. október en stöðin er til húsa við Brákarbraut 18. Metabolic stöðin er hugarfóstur Bryndísar Birgisdóttur og Inga Gunnars Kristbergssonar. Bryndís er einkaþjálfari að mennt en hún kennir í Metabolic æfingakerfinu. Æfingarnar eru á mismunandi erfiðleikastigum og ættu tímarnir því að henta flestum en sérstakir lyftingatímar, unglingatímar og teygjutímar eru m.a. á stundaskrá stöðvarinnar. Nánari upplýsingar um stöðina má finna á FB síðu Metabolic Borgarnesi eða vefsíðunni metabolicborgarnesi.is.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56834\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56834 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Metabolic-Borgarnesi-hefur-verid-opnud_1-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Bryndís Birgisdóttir og Ingi Gunnar Kristbergsson hafa opnað Metabolic líkamsræktarstöð í Borgarnesi.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}