Fréttir

true

Bætt aðgengi komið að Svöðufossi

Framkvæmdum við Svöðufoss í Hólmkelsá, skammt frá Rifi á Snæfellsnesi, er þessa dagana að ljúka en ráðist var í endurbætur á aðgengi við ferðamannastaðinn. Verkefnið hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Búið er að koma upp útsýnispalli við fossinn en þangað liggur nýr göngustígur frá fyrri áningarstað og ný göngubrú er einnig komin yfir Laxá á…Lesa meira

true

Yfirlitssýning á verkum Ásu Ólafsdóttur opnuð á morgun

Myndlistarsýning Ásu Ólafsdóttur verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borgarnesi á morgun, laugardaginn 8. október kl. 15:00. Um er að ræða yfirlitsýningu á verkum Ásu þar sem hún varpar upp brotabroti af ævistarfi sínu í myndlist. Opið verður til klukkan 18:00 á opnunardaginn, en eftir það verður sýningin opin kl. 13:00…Lesa meira

true

Vegurinn um Skógarströnd – hver er staðan?

Snæfellsnesvegur (54) sem liggur frá Vestfjarðavegi 60 úr Suður-Dölum um Skógarströnd og að Stykkishólmi er um 66 kílómetra langur og er í daglegu tali kallaður Skógarstrandarvegur. Þessi vegarkafli er að mestu malarvegur en fyrstu tíu kílómetrar hans austan frá eru með bundnu slitlagi, þ.e. þegar ekið er inn á veginn af Vestfjarðavegi. Unnið að endurbyggingu…Lesa meira

true

Sirkusfjör í Grundarfirði

Hringleikur er fjöllistahópur hérna á Íslandi sem hefur verið í samstarfi við samskonar hóp frá Tékklandi. Hóparnir hafa heimsótt nokkra skóla bæði í Tékklandi og svo hérna á Íslandi og vegna afboðunar hérna á Íslandi kom hópurinn í heimsókn í Grunnskóla Grundarfjarðar með stuttum fyrirvara. Hópurinn dvaldi þar í tvo daga en fyrri daginn fengu…Lesa meira

true

Frábær veiði í Flókadalsá stendur uppúr eftir sumarið

Laxveiðin á vestanverðu landinu gerð upp Veiðitölur liggja nú fyrir í flestum laxveiðiám landsins, þar sem veiðinni er lokið. Einu laxveiðiárnar sem ennþá eru opnar eru Ytri- og Eystri Rangá á Suðurlandi og síðan er veiddur sjóbirtingur fyrir austan.Veiði reyndist þokkaleg í mörgum ám, vonbrigði á einstaka stað, en mjög góð í nokkrum. Tíðindamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Munu kortleggja stjórnunar- og eignatengsl í sjávarútvegi

Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi. “Markmið þeirrar vinnu er að stuðla að gegnsæi í eignarhaldi sjávarútvegsfyrirtækja ásamt upplýstri stefnumótun stjórnvalda um regluumgjörð sjávarútvegs og breytingar á henni. Einnig að…Lesa meira

true

Leikskólinn Akrasel tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna

Leikskólinn Akrasel á Akranesi er tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Ein verðlaun eru veitt í þeim flokki til skóla eða annarrar menntastofnunar sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Alls voru fjórir skólar tilnefndir. Akrasel er tilnefndur fyrir markvissa, skapandi og faglega vinnu við umhverfismennt og öfluga…Lesa meira

true

Snæfell með sterkan sigur á Þór Akureyri

Snæfell og Þór Akureyri mættust í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór rólega af stað og eftir fimm mínútna leik var staðan jöfn 7:7. Þá tóku heimakonur góðan kipp, spiluðu feykigóða vörn og hittu vel í sínum skotum á meðan gestirnir voru í veseni og skoruðu…Lesa meira

true

Viðbrögð framhaldsskóla við ofbeldi

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað skólastjórnendur á fund um viðbrögð við kynferðisofbeldi í framhaldsskólum. Á fundinum verður farið yfir stöðuna á innleiðingu viðbragðsáætlana og kynningu þeirra í skólunum. Kynnt verður fyrirmynd að viðbragðsáætlun sem skólar geta nýtt þar sem áætlun hefur ekki verið innleidd eða skerpa þarf verklagið. Markmiðið er að bregðast við ákalli um…Lesa meira

true

Átta menningarverkefni styrkt í Borgarbyggð

Menningarsjóður Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 29. september síðastliðinn að veita alls átta verkefnum styrki og var heildarupphæðin tvær milljónir króna. Þau verkefni sem fengu eftirtalda styrki voru: Íbúasamtök Hvanneyrar og nágrennis fyrir Jólagleði á Hvanneyri 11. desember kr. 200.000, Leikdeild Skallagríms fyrir Jólastund Leikdeildarinnar, skemmtikvöld í samvinnu við Kirkjukór Borgarneskirkju og fleiri listamanna kr.…Lesa meira