Munu kortleggja stjórnunar- og eignatengsl í sjávarútvegi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni <em>Auðlindin</em> <em>okkar</em>. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi.\r\n\r\n\"Markmið þeirrar vinnu er að stuðla að gegnsæi í eignarhaldi sjávarútvegsfyrirtækja ásamt upplýstri stefnumótun stjórnvalda um regluumgjörð sjávarútvegs og breytingar á henni.\r\nEinnig að farið sé að lögum og reglum á þessu sviði og eftirlitsstofnanir geti sinnt hlutverki sínu. Eftirlitsstofnanir sem hafa það hlutverk að fylgjast með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi hafa að eigin frumkvæði áformað að efla samstarf með það að markmiði að skapa betri yfirsýn yfir stjórnunar- og eignatengsl, nýta betur þekkingu á því sviði og styrkja greiningu og nauðsynleg úrræði. Matvælaráðuneytið hefur gert samning við Samkeppniseftirlitið um að tryggja fjárhagslegt svigrúm til að stofnunin geti ráðist í athugun á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi. Samhliða er stefnt að auknu samstarfi stofnana á þessu sviði, þ.e. Samkeppniseftirlitsins, Fiskistofu, Skattsins og Seðlabanka Íslands,\" segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.\r\n\r\nAthuguninni er fyrst og fremst ætlað að auka gegnsæi og bæta stjórnsýslu á sviði eftirlits með stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi. Í athuguninni felst upplýsingasöfnun og kortlagning eignatengsla sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa fengið úthlutað ákveðnu umfangi aflaheimilda og áhrifavaldi eigenda sjávarútvegsfyrirtækja í gegnum beitingu atkvæðisréttar og stjórnarsetu í fyrirtækjum. Þessi kortlagning verður sett fram í sérstakri skýrslu. Skýrslan verður afhent matvælaráðuneytinu eigi síðar en 31. desember 2023 og verður því aðgengileg ráðuneytinu í stefnumótunarvinnu um sjávarútveginn.\r\n\r\nSkýrslan mun ekki fjalla um ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins eða annarra eftirlitsstofnana um frekari athuganir eða íhlutun á grundvelli starfsheimilda eða starfsskyldna samkvæmt hlutaðeigandi lögum. Hún mun hins vegar nýtast Samkeppniseftirlitinu, Fiskistofu, Skattinum og Seðlabanka Íslands við þekkingaruppbyggingu og við beitingu lagafyrirmæla á viðkomandi sviði. Við vinnslu skýrslunnar er stefnt að því að mótuð verði upplýsingatækniumgjörð sem nýtist við frekari kortlagningu og eftirlit með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi almennt.\r\n\r\nNánari upplýsingar um verkefnið <em>Auðlindin okkar </em>má finna á <a href=\"https://www.stjornarradid.is/audlindin-okkar/\">vefsíðu verkefnisins</a> ásamt upplýsingum um skipan í starfshópa og gagnasafni með lögum, dómum, frumvörpum, álitum og úrskurðum sem tengjast sjávarútvegi.",
"innerBlocks": []
}
Munu kortleggja stjórnunar- og eignatengsl í sjávarútvegi - Skessuhorn