
Malarvegurinn margrómaði um Skógarströnd.
Vegurinn um Skógarströnd – hver er staðan?
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfellsnesvegur (54) sem liggur frá Vestfjarðavegi 60 úr Suður-Dölum um Skógarströnd og að Stykkishólmi er um 66 kílómetra langur og er í daglegu tali kallaður Skógarstrandarvegur. Þessi vegarkafli er að mestu malarvegur en fyrstu tíu kílómetrar hans austan frá eru með bundnu slitlagi, þ.e. þegar ekið er inn á veginn af Vestfjarðavegi.\r\n\r\n<strong>Unnið að endurbyggingu 5,4 km kafla</strong>\r\n\r\nSíðari hluta árs 2020 var endurbyggður 1,7 km kafli frá Blönduhlíð að Ketilsstöðum en þá hafði bundna slitlagið í mörg ár endað við Blönduhlíð. Næsta verk sem boðið var út voru framkvæmdir á 5,4 km kafla frá Ketilsstöðum að Gunnarsstöðum. Það er í vinnslu núna og felur í sér endurbyggingu þess vegarkafla og byggingu tveggja brúa, yfir Skraumu og Dunká. Því verki á að vera að fullu lokið sumarið 2023. Þá hefur það verk verið gagnrýnt af íbúum sem segja nýja veginn breiðan, hann rúmi hér um bil þrjár akreinar. Illa sé þar farið með fé og efni sem frekar ætti að nota til að klæða lengri vegarkafla. Skógarstrandarvegurinn þurfi ekki að vera svona mikið mannvirki. Í því sambandi ber að nefna að hönnun vega í dag tekur mið af evrópskum stöðlum hverju sinni.\r\n\r\n<strong>Áratugir í endurbætur</strong>\r\n\r\nÞegar fyrrnefndu verki lýkur stendur eftir um 50 kílómetra langur malarvegur sem tengir saman Dali og Snæfellsnes. Nokkuð ljóst er að ef áfram heldur sem horfir munu árin skipta tugum þar til leiðin verður að fullu bundin slitlagi. Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur hins vegar skorað á stjórnvöld; „að líta á þessa stöðu sem neyðarástand og veita sérstöku fjármagni til þessa vegar þannig að á næstu tveimur árum verði lokið lagningu bundins slitlags á veg 54,“ en það segir í bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar frá 18. ágústs sl. Þar segir einnig að; „Skógarstrandarvegur, með þverun Álftafjarðar, er forsenda fyrir auknu samstarfi sveitarfélaga við Breiðafjörð og góðri tengingu Snæfellsness, Dala, Vestfjarða og Norðurlands.“ Þá er Skógarstrandarvegur eini stofnvegur á Vesturlandi sem er án bundins slitlags og sá lengsti á láglendi landsins alls.\r\n\r\nÍ fyrrnefndri fundargerð sveitarstjórnar Dalabyggðar segir enn fremur að „einstaka ferðaþjónustufyrirtæki hafa bannað sínum ökumönnum og fararstjórum að aka þessa leið sökum þess hvað vegurinn er í slæmu ástandi.“ Skessuhorn hefur jafnframt aðrar heimildir fyrir því.\r\n\r\n<em>Ítarleg fréttaskýring um stöðuna á veginum um Skógarströnd er í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í vikunni. </em>\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56795\"]",
"innerBlocks": []
}