Brynjar Þór Hreggviðsson með lax úr Norðurá fyrr í sumar. Ljósm. gb.

Frábær veiði í Flókadalsá stendur uppúr eftir sumarið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<em><strong>Laxveiðin á vestanverðu landinu gerð upp</strong></em>\r\n\r\nVeiðitölur liggja nú fyrir í flestum laxveiðiám landsins, þar sem veiðinni er lokið. Einu laxveiðiárnar sem ennþá eru opnar eru Ytri- og Eystri Rangá á Suðurlandi og síðan er veiddur sjóbirtingur fyrir austan.Veiði reyndist þokkaleg í mörgum ám, vonbrigði á einstaka stað, en mjög góð í nokkrum. Tíðindamaður Skessuhorns kíkti á stöðuna eftir sumarið.\r\n\r\nHvolsá og Staðarhólsá í Dölum enduðu í 143 löxum og 220 bleikjum þetta sumarið. ,,Það veiddust 155 laxar í Búðardalsánni í sumar,“ sagði Viðar Jónasson er við spurðum um lokatölur. En við vorum á ferðinni í ánni fyrr í sumar og þá veiddi hollið 12 laxa með þá Jóhann Gísla Hermannsson og félaga innanborðs.\r\n\r\n,,Það veiddust 40 laxar og hellingur af sjóbirtingi í sumar, þeir stærstu 6 pund hjá okkur í í Krossá,“ sagði Trausti Bjarnason á Á þegar við spurðum um Krossána.\r\n\r\n,,Flekkudalsá endaði 112 löxum og töluvert af sjóbirtingi var einnig að veiðast,“ sagði Ingimundur Bergsson hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur, en veiðimenn sem voru í ánni í sumar sögðu mikið vera af fiski í ánni, en hann hefði vissulega mátt vera ákveðnari að taka fluguna. Fáskrúð í Dölum endaði í 178 löxum.\r\n\r\nLaxá í Dölum endaði í 810 löxum sem er heldur minni veiði en í fyrra en nokkrir vel vænir fiskar komu á krókana. Haukadalsá í Dölum endaði í 366 löxum sem er líka heldur minna en í fyrra. ,,Við vorum í Haukadalsá í september og hollið veiddi 12 laxa,“ sagði Hrafnhildur Halldórsdóttir um veiðitúrinn í Haukadalsá. Þá gaf Þverá í Haukadal 20 laxa.\r\n\r\n„Já, við vorum að loka Miðá í Dölum og það veiddust 135 laxar og 144 bleikjur í sumar,“ sagði Hörður Heiðar Guðbjörnsson sem var að loka ánni fyrir nokkrum dögum ásamt félögunum í árnefndinni. „Frábært veðurfar hefur verið síðustu daga veiðitímans í mörgum laxveiðiám eins og vestur í Dölum núna, þetta 10-12 gráðu hiti. Við fengum tvo laxa en veiddum ekki mikið, vorum að ganga frá á svæðinu,“ sagði Hörður. Hörðudalsá í Dölum endaði með 80 laxa og 90 bleikjur á land.\r\n\r\nErfitt er að fá veiðitölur úr Dunká í Hörðudal og Álftá á Mýrum þar sem sami útlendingur er með þær báðar og veiðir lítið í þeim.\r\n\r\nStraumfjarðará endaði í 348 löxum sem mjög svipuð veiði og var árið áður.\r\n\r\nHaffjarðará var að gefa góða veiði í sumar en aðeins færri laxar veiddust en í fyrra, eða 870. Veiðin þar var fremur jöfn í allt sumar. Hítará skilaði betri veiði en í fyrra eða 708 löxum. Þrátt fyrir það var leigutökum árinnar skipt út og Haraldur Eiríksson og Reynir Þrastarson tóku við henni eftir þetta haust.\r\n\r\nLangá endaði í 1077 löxum og bætti sig verulega á milli ára. ,,Alltaf gaman að veiða í Langá,“ sagði Jógvan Hansen fyrr í sumar á árbakkanum og landaði laxi skömmu síðar.\r\n\r\nStaumarnir enduðu 177 löxum og mikið af sjóbirtingi kom þar á land. Brennan gaf 204 laxa og sömuleiðis marga sjóbirtinga.\r\n\r\nGljúfurá í Borgarfirði endaði í 261 laxi og töluvert af silungi kom á land. Það er aðeins betri veiði en í fyrra.\r\n\r\n,,Norðurá endaði í 1352 löxum þetta árið og það er bara allt í lagi veiði,“  sagði Brynjar Þór Hreggviðsson er við spurðum um ána.\r\n\r\nÞverá í Borgarfirði gaf heldur meiri veiði en Norðurá, eða 1448 laxa og bætti sig á milli ára. Er hún í efsta sæti vestlensku ánna, Norðurá í öðru og Langá í þriðja. Þverá og Kjarará gáfu báðar laxa yfir 20 pundin í sumar.\r\n\r\nFlókdalsá er einn af hástökkvurum í veiðinni í sumar yfir allt landið, en áin gaf 519 laxa en sumarið áður 281 lax, sem er heldur betur bæting. Margir fengu fína veiði og ennþá fleiri veiddu maríulaxana sína í ánni.\r\n\r\nReykjadalsá gaf 100 laxa þetta sumarið. Í sumar hefur nýtt veiðihús verið reist í landi Reykholts og má næsta sumar vænta þess að aðstaða veiðimanna við ána stórbatni frá því sem var í litlu veiðihúsi í landi Kjalvararstaða.\r\n\r\n„Við vorum í Grímsá undir lok tímabilsins og gekk ágætlega,“ sagði Birgir Nielsen en Grímsá gaf 708 laxa þetta sumarið. Er það svipuð veiði og fyrir ári síðan. Skuggi í Grímsá gaf 80 laxa og helling af sjóbirtingi, að sögn Jón Þ Júlíussonar hjá Hreggnasa. „Fín veiði í Grímsá þetta sumarið líka,“ sagði Jón Þór.\r\n\r\nAndakílsá endaði í 349 löxum þetta sumarið sem er aðeins minni veiði en í fyrra. „Það er alltaf gaman að veiða í Andakílsá. Við fengum sjö laxa á einum degi,“ sagði Hafsteinn Már Sigurðsson sem víða hefur veitt í sumar. Andakílsá er engu að síður að ná fyrri styrk sínum eftir aurflóðið mikla fyrir fjórum árum.\r\n\r\nLeirá hefur verið að gefa vel á veiðitímabilinu; sjóbirtinga, flotta fiska, síðan hefur laxinn verið að gefa sig í ánni undir það síðasta. Fyrsti dagurinn í Leirá í vor gaf 60 sjóbirtinga, allt mjög fallega fiska. Raunar vakti víðar athygli snemmsumars hversu vænn sjóbirtingur kom á land.\r\n\r\nLaxá í Leirársveit gaf 800 laxa sem var fín veiði en árið áður gaf áin 850 laxa. „Sumarið kom vel út hjá okkur. Fínt vatn í ánni í sumar og mikið af fiski,“ sagði Olafur Johnson er við spurðum um ána og veiðina í sumar.\r\n\r\nBrynjudalsá í Hvalfirði gaf 140 laxa og Laxá í Kjós með rétt um 1000 laxa og mikið af flottum sjóbirtingi. Lokahollið í ánni náði 100 löxum, sem er frábær veiði.\r\n\r\nJá, nú er veiðisumarið á enda. Vatnsbúskapurinn var góður í allt sumar, engir þurrkakaflar sem náðu að þurrka árnar upp. Í ljósi þess hefði veiðin víða mátt vera heldur meiri, en mest um vert er þó að menn hafi átt ánægjulegar stundir á bökum ánna, og notið frábærrar náttúru á Vesturlandi. Ef allir fara glaðir heim, koma þeir jú aftur.",
  "innerBlocks": []
}
Frábær veiði í Flókadalsá stendur uppúr eftir sumarið - Skessuhorn