
Hér má sjá margar keilur á lofti en færni þessara listamanna var framúrskarandi góð. Ljósm. tfk
Sirkusfjör í Grundarfirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hringleikur er fjöllistahópur hérna á Íslandi sem hefur verið í samstarfi við samskonar hóp frá Tékklandi. Hóparnir hafa heimsótt nokkra skóla bæði í Tékklandi og svo hérna á Íslandi og vegna afboðunar hérna á Íslandi kom hópurinn í heimsókn í Grunnskóla Grundarfjarðar með stuttum fyrirvara. Hópurinn dvaldi þar í tvo daga en fyrri daginn fengu nemendur tækifæri til að læra sirkusatriðin og þeim boðið að vera með í sýningunni. Seinni daginn var svo sýning fyrir nemendur og áhugasama. Hópurinn lék listir sýnar í íþróttahúsinu í Grundarfirði 27. september og var sýningin hin glæsilegasta. Nemendur sem tóku þátt stóðu sig líka frábærlega og hver veit nema við sjáum eitthvað af þeim með marga bolta á lofti í framtíðinni.\r\n\r\n[gallery size=\"medium\" ids=\"56757\"]",
"innerBlocks": []
}