Fréttir

true

Málþing um Þorstein frá Hamri

Laugardaginn 17. september verður haldið málþing um skáldið Þorstein frá Hamri í Hátíðasal Háskóla Íslands. Þar munu ellefu fyrirlesarar, jafnt rithöfundar sem fræðimenn, fjalla um framlag Þorsteins til íslenskrar tungu, bókmennta og þjóðlegra fræða. Flest erindin snúa að ljóðlist Þorsteins, enda er hann eitt merkasta ljóðskáld þjóðarinnar fyrr og síðar, en skáldsögur hans og framlag…Lesa meira

true

Meira um framkvæmdir við Deildartunguhver

Í byrjun mánaðarins birtum við frétt þess efnis í Skessuhorni að framkvæmdir hafa staðið yfir við umhverfi og aðkomu að Deildartunguhver í Borgarfirði. Sindri Arnfjörð hjá Garðaþjónustunni Sigur-görðum annast verkið. Nú er m.a. verið að lagfæra aðkomu að hvernum með því að hallabreyta öllu svæðinu og fá yfirborðsvatn til að renna í niðurföll. Hellulagt var…Lesa meira

true

Sigríður Víðis sendir frá sér bókina Vegabréf: Íslenskt

„Vegabréf: Íslenskt“ er ný bók eftir rithöfundinn Sigríði Víðis Jónsdóttur, en bókin kom út hjá Forlaginu í gær, þriðjudaginn 13. september. Fyrri bók hennar; „Ríkisfang: Ekkert“ kom út sama dag fyrir ellefu árum. Í káputexta með nýju bókinni er henni líst svo: „Allt frá því Sigríður Víðis Jónsdóttir komst yfir rauðu landabréfabókina á skólabókasafninu á…Lesa meira

true

„Ég get gert allt sem Dagmar getur gert“

Hvernig áttu að bregðast við þegar þú sérð hárlaust barn? Kristín Lind Estrajher, 4 ára, er með sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia. Blaðamaður fékk að heyra sögu Kristínar og ræddi við foreldra hennar, Sonju Lind Eyglóardóttur og Pavle Estrajher um sjúkdóminn, vitundarvakningu og mikilvægi þess að halda kúlinu og bregðast rétt við þegar upp koma aðstæður sem þessar,…Lesa meira

true

Bæjarstjórn mótmælir harðlega hækkun á gjaldskrá landsbyggðarstrætó

„Bæjarstjórn Akraness mótmælir harðlega þeim gjaldskrárhækkunum sem urðu hjá landsbyggðarstrætó síðastliðið sumar og koma sérstaklega hart niður á reglulegum notendum strætisvagna á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins,“ segir í bókun sem bæjarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum. „Njóta þessir farþegar nú hlutfallslega mun lakari afsláttarkjara en farþegar á öðrum leiðum miðað við muninn á verði staks…Lesa meira

true

Styrkir greiddir út til einkarekinna fjölmiðla

Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra, en í nefndinni sátu Árni Vilhjálmsson, Stefán Svavarsson og Valgerður Anna Jóhannsdóttir. Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 917,5 milljónir kr.…Lesa meira

true

„Sérlega ósanngjarnt að hefja að nýju gjaldtöku í Hvalfjarðargöng“

Á fundi sínum 25. september árið 2018 sendi bæjarstjórn Akraneskaupstaðar frá sér ályktun þar sem hún fagnaði þeim merkisáfanga, að Spölur skilaði Hvalfjarðargöngum uppgreiddum til ríkisins tuttugu árum eftir að þau voru opnuð fyrir umferð. Það að göngunum væri skilað að fullu uppgreiddum til ríkisins var lykilatriði, því það þýddi að innheimta veggjalda yrði lögð…Lesa meira

true

Spyr ráðherra hversu langt dýraníð eigi að ganga

Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra barst í dag opið bréf frá Steinunni Árnadóttur íbúa í Borgarnesi og áhugakonu um velferð dýra, eins og hún skilgreinir sig í bréfinu. Þar spyr Steinunn ráðherra þess hversu langt sé hægt að láta skepnuníð viðgangast á einum bæ, án þess að yfirvöld bregðist við af festu. Að beiðni Steinunnar er bærinn…Lesa meira

true

Styttist í lengingu hafnargarðs á Akranesi

Á fundi í stjórn Faxaflóahafna 1. september síðastliðinn var kynnt endurskoðuð kostnaðaráætlun fyrir lengingu aðalhafnargarðsins á Akranesi. Heildarkostnaður við verkið er nú áætlaður 1.494 milljónir króna. Lengi hefur legið fyrir að bæta þurfi hafnargarðinn á Akranesi til að bæta megi aðstæður skipa í höfninni, koma í veg fyrir ókyrrð á borð við sog sem þar…Lesa meira

true

„Ótrúlega næs og gott fólk á Akranesi”

Hjónin Konni Gotta og Jódís Lilja Jakobsdóttir hafa í sumar verið með starfsemi á bryggjunni við endann á Bakkatúni á Akranesi undir nafninu Hoppland. Þar reistu þau átta metra sjódýfingapall og hefur verið mikið fjör hjá þeim í allt sumar. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í þeim hljóðið í síðustu viku og segja þau að opið verði…Lesa meira