Þessi fór heljarstökk af fjórða palli. Ljósm. Bergur Líndal

„Ótrúlega næs og gott fólk á Akranesi”

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hjónin Konni Gotta og Jódís Lilja Jakobsdóttir hafa í sumar verið með starfsemi á bryggjunni við endann á Bakkatúni á Akranesi undir nafninu Hoppland. Þar reistu þau átta metra sjódýfingapall og hefur verið mikið fjör hjá þeim í allt sumar. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í þeim hljóðið í síðustu viku og segja þau að opið verði um næstu helgi á pallinum en svo ætla þau meira að taka á móti hópum og vera með einstakar opnanir í vetur. Stökkpallurinn verður þarna í vetur en hann verður styrktur og festur betur fyrir vetrarveðrin.\r\n\r\nJódís segir að það hafi gengið mjög vel í sumar. „Þetta var ótrúlega gaman, maður vann eins og skepna en leið samt aldrei þannig eins og maður væri í vinnu og þá er gaman. Við kynntumst alveg helling af fólki og við erum svo ánægð með fólkið á Akranesi hvað það hefur verið hjálpsamt ef það hefur eitthvað verið sem okkur hefur vantað. Ég verð að nefna hann Ingvar vin okkar sem hefur hjálpað okkur með ýmis verk og hann er að hjálpa okkur núna að styrkja pallinn. Hann er um sjötugt, kíkir á okkur á hjólinu sínu og vill ekki fá neitt fyrir alla aðstoðina, alveg ótrúlegur kall.“\r\n\r\n<strong>Forsetinn kom fjórum sinnum</strong>\r\nJódís segir að aðsóknin í sumar hafi verið mjög góð. „Heimamenn hafa verið duglegir að kíkja á okkur og yfir 50 krakkar verið með klippikort. Ágúst var besti mánuðurinn hjá okkur líklega af því að þetta hefur verið að spyrjast út meira. Það var endalaust af fjölskyldufólki að koma úr bænum og víða að. Aldursskiptingin var þannig að þetta voru mest krakkar en svo var mikið af vinahópum í kringum tvítugsaldurinn sem voru að koma, fjölskyldur og forsetinn er búinn að koma fjórum sinnum í sumar þannig að þetta er búið að vera alls konar. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærsta félagsmiðstöðin á Skaganum í sumar, það er búið að vera ansi mikið fjör og gaman hjá krökkunum í allt sumar.“\r\n\r\n<em>Lengra spjall við hjónin um Hoppsumarið á Akranesi má finna í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56214\"]",
  "innerBlocks": []
}
„Ótrúlega næs og gott fólk á Akranesi” - Skessuhorn