{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra barst í dag opið bréf frá Steinunni Árnadóttur íbúa í Borgarnesi og áhugakonu um velferð dýra, eins og hún skilgreinir sig í bréfinu. Þar spyr Steinunn ráðherra þess hversu langt sé hægt að láta skepnuníð viðgangast á einum bæ, án þess að yfirvöld bregðist við af festu. Að beiðni Steinunnar er bærinn sem í hlut á ekki nefndur í umfjöllun fjölmiðla.\r\n\r\n„Óþarfi ætti að vera að minna á aðkomu þessara aðila við hestaníð í Borgarnesi. Það er um fátt annað meira talað í sveitum landsins,“ skrifar Steinunn og víkur þá máli sínu að atburðarás undanfarinna daga. „Eftir þriggja ára innilokun er kindum ,,hleypt út.“ Þær eru sem sé í lítilli rétt fyrir utan fjárhúsin sem þær hafa verið lokaðar inni í, já enn einu sinni, í þrjú ár. Þetta hlýtur að vera samkvæmt fyrirmælum ,,eftirlitsaðila,“ því bíll merktur MAST var á ferðinni. Þessar kindur eru ekki að komast á beit því heyrúllu er komið fyrir inni í gerðinu. Gott og vel. Nautgripir eru nú örugglega líka samkvæmt fyrirmælum MAST komnir út. Þeir eru reyndar mikið á ferðinni. Enda hafa þeir ekki allir aðgang að vatni. Við leit sína að vatni hafa þeir komið sér í voða í skurðum. Einn nautgripurinn var svo illa fastur í skurði morguninn 13. september að hann þurfti aðstoð að komast upp úr. Eftir þær ,,aðgerðir“ stendur skepnan ekki sjálf,“ skrifar Steinunn. Þá lýsir hún því hvernig eigandi nautgripsins og unnusta hans taka að berja nautið á fætur með bareflum. „Og þar sem hann stóð bara alls ekki upp, þá var bara að berja meira og svo aðeins, enn meira. Nágrannar sáu til og hringdu á lögregluna. Lögreglan mætti á staðinn. Ekki er vitað um afdrif skepnunnar,“ skrifar Steinunn.\r\n\r\nÞá ávarpar hún ráðherra og skrifar: „Ágæta Svandís Svavarsdóttir. Meðan þú varst að maula gotterí eftir þingsetningu voru þessir aðilar að misþyrma skepnu sem gat ekki staðið upp. Áður var ég búin að senda þér bréf og láta vita af hversu mikil illska er hér á ferðinni. Ég hef engin viðbrögð fengið við því bréfi frá þér eða aðstoðarfólki þínu. Þegar lesin eru lög sem Alþingi hefur sett um velferð dýra er mér spurn um hvaða land þau eigi við,“ skrifar Steinunn og vísar í lagagrein um velferð dýra.\r\n\r\nAð endingu segir í bréfi til ráðherra: „Og að lokum: Ástæða þótti til að senda sérsveitina og afvopna umræddan dýraníðing. En engin ástæða er að svipta hann umráðum yfir ósjálfbjarga skepnum sem hann sannarlega misþyrmir. Það virðist vera kappsmál að klappa þessum níðingi á bakið og segja ,,haltu áfram!“ Ég endurtek því spurninguna: Hversu langt á skepnuníðið að ganga,“ og tilgreinir bæinn sem í hlut á.",
"innerBlocks": []
}
Spyr ráðherra hversu langt dýraníð eigi að ganga - Skessuhorn