
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir verklegum prófum fyrir slökkviliðsmenn í Grundarfirði um liðna helgi. Byrjað var á föstudagskvöldinu þar sem Þorlákur Snær Helgason tók einn slökkviliðsmann í verkleg próf í slökkviliðsmaður 1 og 2. Á laugardeginum var svo einn maður sem kláraði stjórnendanámskeið og svo fór dagurinn í verklegar æfingar fyrir slökkviliðsmaður 3 og 4…Lesa meira








