Frá afhendingu gjafarinnar. Ljósm. hestafrettir.is

Kærleiksverk hjá einum fremsta knapa landsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vefurinn Hestafréttir greinir frá því að einn fremsti knapi og íþróttamaður landsins, Árni Björn Pálsson, hafi litið við í Ljósinu um helgina og afhent Ernu Magnúsdóttur, forstöðukonu Ljóssins, 1.130.000 krónur að gjöf. Upphæðin eru sigurlaun Árna Björns úr einstaklings- og liðakeppni mótaraðar Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum í sumar. Vildi Árni Björn með þessu framtaki sínu minnast móður sinnar, Hrafnhildar Árnadóttur, sem lést úr krabbameini árið 2018.\r\n\r\n„Það er ótrúlega magnað að fá að kynnast því mikla starfi sem fram fer í Ljósinu og ég sé að upphæðin mun koma að góðum notum. Ég vona innilega að fleiri styðji við starfið,“ sagði Árni Björn að heimsókn lokinni í samtali við Hestafréttir.",
  "innerBlocks": []
}
Kærleiksverk hjá einum fremsta knapa landsins - Skessuhorn