Ferðaþjónustan skar sig úr í könnuninni hvað bjartsýni varðar. Í ljós kom að 24% fyrirtækja höfðu einhverjar tekjur af ferðamönnum en 12% fyrirtækja sögðust hafa tekjur af ferðaþjónustufyrirtækjum sem gefur vísbendingar fyrir margfeldisáhrifum atvinnugreinarinnar. Myndin er frá hestaleigunni á Lýsuhóli. Ljósm. úr safni.

Í fyrirtækjakönnun kemur fram að fleiri hyggjast ráða fólk til starfa

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í vikunni var fyrirtækjakönnun landshlutanna gefin út af SSV. Hún var framkvæmd á fyrri hluta ársins. Rúmlega 1600 fyrirtæki á landsvíku tóku þátt, þar af tæplega 200 úr þessum landshluta. Á Vesturlandi höfðu hlutfallslega fleiri fyrirtæki hug á að ráða fólk til starfa en árið 2019 þegar könnunin var síðast framkvæmd. Það var í meðallagi borið saman við aðra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins. „Það sama má segja um hug fyrirtækja á Vesturlandi til fjárfestinga. Þörf fyrirtækja á Vesturlandi fyrir faglært vinnuafl jókst einnig á milli kannana. Einnig fyrir fólk með aðra færni sem fæst í skólakerfinu,“ segir í tilkynningu frá Vífli Karlssyni hagfræðingi hjá SSV.\r\n\r\nEinnig kom fram í könnuninni að fyrirtæki á Vesturlandi voru bjartsýnni á horfur í efnahagsmálum heldur en þau voru 2019. Ferðaþjónustan skar sig úr hvað bjartsýni varðar. Í ljós kom að 24% fyrirtækja höfðu einhverjar tekjur af ferðamönnum en 12% fyrirtækja sögðust hafa tekjur af ferðaþjónustufyrirtækjum sem gefur vísbendingar fyrir margfeldisáhrifum atvinnugreinarinnar. Í landfræðilegu tilliti var Vesturland að þessu leyti lítið eitt undir landsmeðaltali sem var 15%. Þetta sama hlutfall var hæst 24% á Suðurlandi og Suðurnesjum, 15% á Austfjörðum og 13% á Norðurlandi eystra. Þetta hlutfall var 10% á höfuðborgarsvæðinu og var engin landshluti svo lágur. Næstur var Norðurland vestra með 11%.\r\n\r\nÍ könnuninni var spurt út í atriði sem tengjast nýsköpun. Þegar spurt var um vöruþróun komu fyrirtæki á Vesturlandi mjög svipað út og aðrir landshlutar. Hins vegar mældist Vesturland lægst þegar spurt var um tekjur af skapandi greinum, þó það væri ekki marktækur munur. Einnig þegar spurt var um tekjur af nýjum vörum og þjónustu.",
  "innerBlocks": []
}
Í fyrirtækjakönnun kemur fram að fleiri hyggjast ráða fólk til starfa - Skessuhorn