Bjartur Bjarmi skoraði úr víti gegn KFA á laugardaginn.Ljósm. víkingur ó.

Víkingur Ó lagði KFA að velli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "KFA og Víkingur Ólafsvík áttust við á laugardaginn í 2. deild karla í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði og lauk leiknum með sigri Víkings, 0-2. Fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson kom Víkingi yfir strax á annarri mínútu með marki úr vítaspyrnu og skoraði þar sitt sjöunda mark í deildinni í sumar. Björn Axel Guðjónsson kom gestunum í tveggja marka forystu þegar hann skoraði rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og Víkingur í góðum málum fyrir seinni hálfleikinn.\r\n\r\nHeimamenn komust lítt áleiðis í þeim seinni og voru mest í því að safna gulum spjöldum. Gestirnir sigldu sigrinum auðveldlega í heimahöfn og uppskáru þægilegan sigur, lokastaðan 0-2 fyrir Víking. Það er ljóst að Njarðvík og Þróttur R. hafa tryggt sér sæti í Lengjudeildinni á næsta tímabili á meðan Reynir S. og Magni þurfa að sætta sig við fall í 3. deild. Ólsarar sigla lygnan sjó í áttunda sæti deildarinnar með 25 stig og markatöluna 40:41.\r\n\r\nSíðasta umferð deildarinnar fer fram næsta laugardag þar sem Víkingur mætir liði Hauka á Ólafsvíkurvelli og hefst leikurinn klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}
Víkingur Ó lagði KFA að velli - Skessuhorn