
Baski segir frá tilurð myndarinnar. Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir er hægra megin við hann.
Altaristafla komin á Höfða
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mánaðarlega eru haldnar messur í samkomusal húkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi og eru þær yfirleitt vel sóttar af heimilisfólki. Nú er búið að setja upp altarismynd í salnum sem hentar þessari notkun hans vel. Það er eftirmynd Bjarna Skúla Ketilssonar, Baska, af altaristöflunni í Dómkirkjunni í Reykjavík. Eftirmynd Dómkirkjumyndarinnar er í Akraneskirkju en þá mynd lagfærði Baski fyrir tveimur árum. Hans verk kom þá tímabundið í stað upprunalegu altaristöflunnar á meðan á viðgerð hennar stóð. Því hlutverki er nú lokið svo þá lá vel við að fá myndina að Höfða. Sómdi hún sér afar vel í guðsþjónustu sem Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir hélt þar í síðustu viku.\r\n\r\nÞar sagði Baski frá tilurð verksins, sem var átta mánuði í vinnslu, enda vandað til verka og unnið með þeim aðferðum sem notaðar voru á öldum áður við gerð slíkra mynda. Upprunalegu altaristöfluna í Akraneskirkju málaði Sigurður Guðmundsson árið 1865 sem eftirmynd af altaristöflunni sem í dag prýðir Dómkirkjuna og er eftir danska listamanninn G.T. Wegener.",
"innerBlocks": []
}