Skagamenn létu sig ekki vanta í stúkuna í leiknum á móti FH. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

Skagamenn í neðsta sætið á ný

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "FH og ÍA mættust í gær í 21. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fyrir leik var FH einu stigi og einu sæti fyrir ofan í deildinni og því ansi mikilvægur leikur í botnbaráttunni. En það var eins og Skagamenn væru ekki alveg að átta sig á vægi hans því eftir fimm mínútna leik voru FH-ingar komnir yfir með marki Matthíasar Vilhjálmssonar úr víti. Rúmum tíu mínútum síðar bætti Vuk Dimitrijevic við öðru marki fyrir heimamenn þegar hann sýndi mikla áræðni og kom boltanum framhjá Árna Marinó í markinu. Skagamenn náðu þó að minnka muninn gegn gangi leiksins á 33. mínútu þegar boltinn féll fyrir fætur Steinars Þorsteinssonar í teignum sem hamraði honum í netið og gaf ÍA smá von. Sá vonarneisti slokknaði þó fljótt því rétt fyrir hálfleik náði Oliver Heiðarsson að koma boltanum yfir línuna og staðan í hálfleik 3-1 fyrir FH.\r\n\r\nSeinni hálfleikurinn fór rólega af stað og lítið um marktækifæri. Skagamenn reyndu hvað sem þeir gátu til að minnka muninn en ógnuðu lítið og náðu ekki að skapa sér nein marktækifæri. Þeir gerðu þrefalda skiptingu korteri fyrir leikslok en í þetta skiptið var það ekki til að hjálpa þeim mikið. Vuk bætti við fjórða markinu skömmu síðar fyrir FH og tveimur mínútum eftir það skoraði Steven Lennon fimmta markið en þetta var hans 100 mark í efstu deild. Á lokamínútunni skoraði síðan Máni Austmann sjötta mark FH í leiknum og stórsigur þeirra ekki góð staðreynd, lokatölur 6-1 fyrir Hafnarfjarðarpilta.\r\n\r\nEftir úrslit gærdagsins sem voru Skagamönnum alls ekki hliðholl er staðan þannig í fallbaráttunni að ÍBV er með 20 stig í níunda sæti, FH með 19 stig í tíunda sætinu, í næst neðsta er Leiknir R. með 17 stig og ÍA er neðst með 15 stig. Ef mótið hefði verið 22. umferðir eins og vanalega væru Skagamenn fallnir en eftir mót verður í fyrsta skipti úrslitakeppni þar sem sex efstu liðin og sex neðstu keppa. Þar taka liðin með sér stigin og það er ljóst að ÍA þarf að ná í þrjú stig gegn Leikni í síðustu umferðinni til að hafa smá líflínu áður en sú keppni hefst. Síðasta umferð Bestu deildarinnar verður öll á sama tíma eins og umferðin í gær og fer fram á laugardaginn. Viðureign ÍA og Leiknis verður á Akranesvelli og hefst klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}