Fréttir

true

Veiddi lax á 85 ára afmælisdeginum

Guðrún Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Þyrli í Hvalfirði, en er í dag búsett á Akranesi. Í búskapartíð sinni bjó Guðrún í 34 ár á Múlastöðum í Flókadal ásamt Ingvari Ingvarssyni manni sínum sem jafnframt var veiðivörður við Flóku. Í búskapartíð þeirra áttu þau fasta veiðidaga í ánni og hefur fjölskyldan haldið þeim allar…Lesa meira

true

Víkingur Ó lagði KFA að velli

KFA og Víkingur Ólafsvík áttust við á laugardaginn í 2. deild karla í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði og lauk leiknum með sigri Víkings, 0-2. Fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson kom Víkingi yfir strax á annarri mínútu með marki úr vítaspyrnu og skoraði þar sitt sjöunda mark í deildinni í sumar. Björn Axel Guðjónsson kom gestunum…Lesa meira

true

Strandveiðibátarnir teknir upp

Strandveiðibátum fækkar ört í höfnum Snæfellsbæjar þessa dagana, enda lítil sem enginn verkefni fyrir þá að hafa, eftir að strandveiðum var hætt fyrir lok júlí. Strandveiði sjómaðurinn Ólafur Hallgrímsson tók bát sinn Smyrill SH upp á laugardagskvöldið og hyggst hann taka til hendinni og skvera bátinn svo allt verði klappað og klárt fyrir næsta veiðitímabil.Lesa meira

true

Lokað fyrir heitt vatn til orlofshúsa í Munaðarnesi

Viðgerð stendur yfir á hitaveitu Munaðarness en lokað verður fyrir heitt vatn á svæðinu 12.-19 september. Mestmegnis eru sumarbústaðir tengdir umræddri veitu. Vatn kemur aftur inn á veituna mánudaginn 19. september klukkan 19 samkvæmt heimasíðu Veitna. Veitur benda fólki á að huga að gólfhitadælum en varasamt getur verið að láta slíkar dælur ganga þurrar yfir…Lesa meira

true

Altaristafla komin á Höfða

Mánaðarlega eru haldnar messur í samkomusal húkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi og eru þær yfirleitt vel sóttar af heimilisfólki. Nú er búið að setja upp altarismynd í salnum sem hentar þessari notkun hans vel. Það er eftirmynd Bjarna Skúla Ketilssonar, Baska, af altaristöflunni í Dómkirkjunni í Reykjavík. Eftirmynd Dómkirkjumyndarinnar er í Akraneskirkju en þá…Lesa meira

true

Skagamenn í neðsta sætið á ný

FH og ÍA mættust í gær í 21. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fyrir leik var FH einu stigi og einu sæti fyrir ofan í deildinni og því ansi mikilvægur leikur í botnbaráttunni. En það var eins og Skagamenn væru ekki alveg að átta sig á…Lesa meira

true

Kærleiksverk hjá einum fremsta knapa landsins

Vefurinn Hestafréttir greinir frá því að einn fremsti knapi og íþróttamaður landsins, Árni Björn Pálsson, hafi litið við í Ljósinu um helgina og afhent Ernu Magnúsdóttur, forstöðukonu Ljóssins, 1.130.000 krónur að gjöf. Upphæðin eru sigurlaun Árna Björns úr einstaklings- og liðakeppni mótaraðar Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum í sumar. Vildi Árni Björn með þessu framtaki sínu…Lesa meira

true

Forseti Alþjóða Lionshreyfingarinnar heimsótti HVE á Akranesi

Alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, Brian E. Sheehan, er staddur á Íslandi. Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðna tóku á móti honum og fylgdarliði hans í höfuðstöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Þar voru fulltrúar frá HVE Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri, Ásgeir Ásgeirsson framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, Björn Gunnarsson yfirlæknir skurð- og svæfingardeildar og Vilborg Lárusdóttir mannauðsstjóri. Lionsklúbbur Akraness og…Lesa meira

true

Sparkvöllurinn sópaður í Stykkishólmi

Unnið er nú að því að bæta aðstöðu knattspyrnuiðkenda á sparkvellinum við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Lítill götusópur hefur farið yfir völlinn í þeim tilgangi að sópa upp kurlinu sem hefur reynst mörgum þreytandi. Með því að sópa völlinn og þrífa hann er vonast til þess að losna við eða draga úr þeirri svertu sem berst…Lesa meira