Hópurinn fékk leiðsögn um spítalann. Fyrir miðju er Sheedan alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar ásamt konu sinni Lori Sheedan. Ljósm. gbþ.

Forseti Alþjóða Lionshreyfingarinnar heimsótti HVE á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, Brian E. Sheehan, er staddur á Íslandi. Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðna tóku á móti honum og fylgdarliði hans í höfuðstöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Þar voru fulltrúar frá HVE Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri, Ásgeir Ásgeirsson framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, Björn Gunnarsson yfirlæknir skurð- og svæfingardeildar og Vilborg Lárusdóttir mannauðsstjóri. Lionsklúbbur Akraness og aðrir Lionsklúbbar á Vesturlandi hafa í mörg ár verið duglegir við að styrkja HVE með kaupum á ýmsum búnaði sem vantað hefur á stofnunina.\r\n\r\nJóhanna Fjóla hélt stutta ræðu þar sem hún sagði m.a. frá fjölbreyttu starfi stofnunarinnar, mikilvægu hlutverki hennar í landshlutanum og góðu og mikilvægu samstarfi við Landspítalann. Jóhanna nefndi að síðan hún tók við forstjóraembættinu fyrir fimm árum síðan hafi Lionsklúbburinn gefið HVE tæki og búnað að andvirði 32 milljóna króna. Þá tók Björn Gunnarsson yfirlæknir til máls og sagði gestum frá innra starfi slíkrar stofnunar úti á landi og nefndi þar tilkomu nýju skurðstofunnar sem er sérstaklega gerð fyrir liðskiptaaðgerðir. Þá vakti hann máls á því að þar sem Ísland er fámenn þjóð í stóru landi hafi hann töluverðar áhyggjur af framtíð minni sjúkrahúsa á landsbyggðinni þar sem ekki er fjárhagslegur grundvöllur til þess að halda úti skurðstofum sem lítið eru nýttar. Þá eru styrkir líkt og Lionsklúbbar hafa gefið HVE í mörg ár einstaklega verðmætir.\r\n\r\nSheehan var áhugasamur og mjög ánægður með allt það góða starf sem Lionsklúbburinn hafði unnið í þágu HVE. Hann hafði meðferðis svokallaða vináttuborðfána sem hann afhenti Jóhönnu Fjólu ásamt glerverki. Valdimar Þorvaldsson, formaður Lionsklúbbs Akraness, tók einnig á móti slíkum fána og afhenti Sheeran á móti borðfána Lionsklúbbs Akraness. Þá tók Valdimar á móti viðurkenningum fyrir hönd Þóris Bergmundssonar og Gests Sveinbjörnssonar. Viðurkenningin er fjórða hæsta viðurkenning sem Alþjóða Lionsklúbburinn veitir og er hún veitt fyrir góða þjónustu og góðan árangur í starfi fyrir Lionsklúbbinn. Loks sæmdi Sheehan Benjamín Jósefsson forsetaorðu Alþjóða Lionsklúbbsins og er það þriðja hæsta viðurkenning sem Alþjóða Lionsklúbburinn veitir.\r\n\r\nAð loknum ræðuhöldum og kaffispjalli fóru Jóhanna og Björn fyrir hópnum og sýndu þeim um spítalann. Þá endaði gangan inni á Rannsóknarstofu þar sem Guðmundur Bjarki Halldórsson tók á móti hópnum og sagði frá starfinu inni á rannsóknarstofunni. Hann sýndi svo Sheehan eitt af þeim fjölmörgu tækjum sem Lionshreyfingin hefur gefið HVE.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"56146,56147,56148,56149,56150,56151\"]",
  "innerBlocks": []
}
Forseti Alþjóða Lionshreyfingarinnar heimsótti HVE á Akranesi - Skessuhorn