Fréttir

true

Vel var mætt á Ólafsdalshátíð

Ólafsdalshátíð fór fram um liðna helgi. „Hátíðin tókst mjög vel, margt var um manninn og allir skemmtu sér konunglega,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins. Fjölbreytt dagskrá var í boði. Meðal annars var hægt að fara í göngutúr með fornleifafræðingi frá Fornleifastofnun Íslands þar sem víkingaaldarskálinn var skoðaður auk minja sem grafnir hafa verið upp á…Lesa meira

true

Gáfu Stafholtskirkju bekk

Í júnímánuði síðastliðnum afhentu þau Páll, Ásta, Margrét og Guðný Brynjólfsbörn kirkjugarðsbekk til Stafholtskirkju. Bekkinn gáfu þau til minningar um foreldra sína, séra Brynjólf Gíslason og Áslaugu Pálsdóttur. Þau Brynjólfur og Áslaug bjuggu í Stafholti árin 1969-2008 en Brynjólfur sinnti starfi sóknarprests í Stafholtsprestakalli þessi 39 ár.Lesa meira

true

Reykholtskirkja á arf í vændum

Einn helsti velgjörðarmaður Reykholtskirkju og Snorrastofu frá upphafi bygginganna undir lok síðustu aldar var norski kaupsýslumaðurinn og skipaútgerðarmaðurinn Jans Petter Røed, sem lést fyrr í sumar. Á sinni tíð efnaðist hann á skiparekstri og alþjóðaviðskiptum og var í hópi auðugustu Norðmanna. Tilviljun mun hafa ráðið því að um aldamótin heimsótti hann Reykholt og hreifst af…Lesa meira

true

Á góðri stundu í Grundarfirði hefst á morgun

Hátíðin Á góðri stundu er vinaleg fjölskylduhátíð sem hugsuð er fyrir Grundfirðinga, innfædda, aðflutta og brottflutta, vini þeirra og vandamenn og aðra gesti sem eiga leið í bæjarfélagið. Í ár verður hátíðin í þeim anda sem var árið 2019, stór þriggja daga hátíð með skreytingum og mörgum atriðum. Eins og fyrr er áhersla lögð á…Lesa meira

true

Næstu útgáfur á Skessuhorni

Skessuhorn kemur út samkvæmt venju næsta miðvikudag, 27. júlí. Eftir það fer allt starfsfólk blaðsins í viku sumarleyfi og kemur því ekki út blað miðvikudaginn 3. ágúst. Þann dag kemur hins vegar starfsfólk úr fríi og undirbýr útgáfu blaðs miðvikudaginn 10. ágúst.Lesa meira

true

Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna

Hestamannafélagið Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna um liðna helgi. Mótið var haldið að Æðarodda annað árið í röð. Keppt var í átta greinum í fjórgangi, fimmgangi, tölt- og skeiðgreinum en alls bárust 65 skráningar. Stine Laatsch, formaður mótsnefndar Dreyra, segir að flestir keppendur hafi komið af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandinu en fín þátttaka var einnig hjá Vestlendingum.…Lesa meira

true

Ræðir um hvernig björgunarfólk vinnur úr áföllum

Starf í björgunarsveitum er mikilvægt og ýmis minni byggðarlög gætu einfaldlega ekki virkað eins og þau gera, ef ekki væri fyrir hóp fólks sem er tilbúið til að henda öllu frá sér þegar kallið kemur. Einar Þór Strand gekk ungur í skátana og þaðan lá leiðin í Hjálparsveit skáta. Eftir að hann flutti í Stykkishólm…Lesa meira

true

Borgfirðingar og Skagamenn á árlegu púttmóti

Síðastliðinn miðvikudag héldu pútthópar eldri borgara á Akranesi og í Borgarbyggð annað mót sumarsins af þremur. Þetta er tíunda árið í röð sem félögin halda þessa púttkeppni. Í júní var keppt í Borgarnesi, nú í júlí á Akranesi og 4. ágúst næstkomandi ráðast úrslitin á Nesvelli í Reykholtsdal. Fyrirkomulagið er þannig að árangur sjö bestu…Lesa meira

true

Hinseginhátíð Vesturlands í Snæfellsbæ um helgina

Í júlí í fyrra var í fyrsta skipti haldin Hinseginhátíð Vesturlands og var hún haldin með pompi og prakt í Borgarnesi. Þetta árið verður fjörið í Snæfellsbæ og aðalatriði helgarinnar verður Gleðigangan laugardaginn 23. júlí klukkan 14 í Ólafsvík þar sem fjölbreytileikanum verður fagnað til að styðja við réttindabaráttu hinsegin fólks á Vesturlandi. Hátíðin hefst…Lesa meira