Frá gleðigöngunni í Borgarnesi í fyrra. Ljósm. glh

Hinseginhátíð Vesturlands í Snæfellsbæ um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í júlí í fyrra var í fyrsta skipti haldin Hinseginhátíð Vesturlands og var hún haldin með pompi og prakt í Borgarnesi. Þetta árið verður fjörið í Snæfellsbæ og aðalatriði helgarinnar verður Gleðigangan laugardaginn 23. júlí klukkan 14 í Ólafsvík þar sem fjölbreytileikanum verður fagnað til að styðja við réttindabaráttu hinsegin fólks á Vesturlandi.\r\n\r\nHátíðin hefst á föstudaginn þar sem samfélagsmiðlar af Vesturlandi verða skreyttir í regnbogalitunum með myllumerkjunum #hinseginvest #hinseginvest22. Lautarferð í heimahaga er kósý lautarferð með góðum veitingum til fjalls eða fjöru. Systur halda sína fyrstu opinberu tónleika frá því að þær tóku þátt í Eurovision í Frystiklefanum á Rifi klukkan 20.30 og kvöldinu lýkur með Pallaballi í Grundarfirði.\r\n\r\nLaugardagurinn hefst með Regnbogakrossfiti á Smiðjugötu 5 á Rifi klukkan 10 og sjálf Gleðigangan fer síðan af stað klukkan 14 móts við Ólafsbraut 66, síðan er gengið eftir Ólafsbraut, hring upp Kirkjutún og endað í Sjómannagarðinum. Skemmtidagskrá verður í garðinum eftir göngu þar sem kynnir verður dragdrottningin Miss Agatha P. Meðal þeirra sem koma fram eru Systur, hljómsveitin Eva, Bolli og Bjalla úr Stundinni okkar, Fævý Blær Þórdísar og Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir forseti Hinsegin Vesturlands. Hoppukastalar verða á svæðinu og Regnbogabúð og sjoppa Hinsegin Vesturlands. DJ AlexanderAron verður síðan með Queer AF diskó á rekS frá klukkan 22 til 01 á laugardagskvöldinu og hátíðinni lýkur síðan á sunnudeginum með Regnbogasundlaugardiskói fyrir alla fjölskylduna í Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík milli klukkan 13 og 14.\r\n\r\n<strong>Sól og blíða og fjör</strong>\r\n\r\nSkessuhorn heyrði í Guðrúnu Steinunni Guðbrandsdóttur og segir hún að undirbúningurinn fyrir hátíðina hafi gengið mjög vel. Hann hófst fljótlega eftir áramótin en síðan hefur allt farið á fullt á síðustu vikum. Að sögn eru þau í mjög góðu samstarfi við Snæfellsbæ og dagskráin verði á svipuðum nótum og í fyrra. „Við verðum með þekkta tónlistarmenn og lítt þekktari af Vesturlandi og einnig fjölbreytt skemmtiatriði af ýmsum toga. Við vonumst eftir fjölmenni um helgina, við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð og miðað við undanfarna atburði eins og í Osló nýverið þá vill fólk koma saman og sýna stuðning og baráttuvilja.“ Gunna, eins og hún er jafnan kölluð, lofar góðri skemmtun í Snæfellsbæ um helgina og segir að það verði sól og blíða og fjör, það sé stefnan og hún segir einnig að á hátíðinni verði tilkynnt hvar næsta Hinsegin hátíð Vesturlands verði á nýju ári. „Við erum annars rosa spennt fyrir helginni, þetta verður megastuð frá föstudegi til sunnudags. Endilega að koma og fagna fjölbreytileikanum og styðja jafnréttisbaráttu og mæta með gleðina að vopni,“ sagði Gunna að lokum, ofurspennt fyrir helginni.",
  "innerBlocks": []
}
Hinseginhátíð Vesturlands í Snæfellsbæ um helgina - Skessuhorn