Fréttir

true

Stemning fyrir leik Íslands og Ítalíu

Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns er nú staddur í Manchester á Englandi í hópi fjölmargra Íslendinga á leið á völlinn. Núna klukkan 16 eigast við landslið Íslands og Ítalíu í annarri umferð D riðils EM í knattspyrnu kvenna. Í fyrsta leik gerðu íslensku stelpurnar jafntefli við Belga en Ítalía steinlá fyrir Frakklandi; 1-5. Fyrirfram er…Lesa meira

true

Gert að birta minnisblað um framkvæmdir við skóla

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað 12. júlí síðastliðinn upp úrskurð í máli sem varðar upplýsingagjöf sveitarfélagsins Borgarbyggðar sem synjað hafði Guðsteini Einarssyni íbúa í Borgarnesi um aðgang að skýrslu eftirlitsmanns með framkvæmdum við stækkun Grunnskólans í Borgarnesi. Á framkvæmdatímanum komu upp ýmis vandamál sem leiddu til að verkið í heild varð mun dýrara en áætlað hafði…Lesa meira

true

Slökktu eld í ýtu

Slökkvilið Borgarbyggðar fór í morgun í útkall að Þverholtum á Mýrum. Þar hafði eldur kviknað í jarðýtu sem unnið var á við að brjóta land til ræktunar. Að sögn Bjarna Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gekk vel að slökkva eldinn, en töluverðar skemmdir urðu á vél- og rafbúnaði í ýtunni.Lesa meira

true

Jarðgangagjaldi ætlað að fjármagna stærri samgönguverkefni

Fyrirhugað er að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum hér á landi á næsta eða þarnæsta ári. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni, en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur boðað frumvarp um málið í haust. Gjaldtakan á að standa undir framtíðar jarðgangagerð í landinu. Í því sambandi bendir ráðherrann á að Fjarðarheiðargöng…Lesa meira

true

Pílagrímar ganga í Borgarfirði

Þær Anna Eiríksdóttir, sóknarprestur Stafholtsprestakalls, og Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur og fyrrverandi sóknarprestur í Stafholti, standa í sumar fyrir Pílagrímagöngu milli kirknanna í sókninni. Mánudaginn 6. júní var gengið frá Hvammskirkju í Norðurárdal, yfir Grjótháls og að Norðtungukirkju en leiðin er um ellefu km. Í gær, miðvikudaginn 13. júlí hélt hópurinn svo frá Norðtungukirkju, gekk með…Lesa meira

true

Sprengihætta af Sóló sumarbjór

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Sóló sumarbjór frá Íslenskri hollustu vegna þess að bjórdósir geta bólgnað og sprungið. Fyrirtækið Og natura/Íslensk hollusta hefur innkallað bjórinn í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness (HEF). Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Og natura Vöruheiti: Sóló Sumarbjór Best fyrir dagsetning/Lotunúmer: 22.okt 2022 /…Lesa meira

true

Vilja flýta leitum og réttum

Nokkrar fjallskilanefndir í Borgarbyggð hafa óskað eftir heimild til að flýta göngum og réttum í haust um eina viku og víkja þannig frá gildandi fjallskilareglugerð. Þetta er gert m.a. þar sem gróður var snemma á ferðinni í vor og sölnar því fyrr þegar líður á sumar. Þá greiða afurðastöðvar að jafnaði hæsta verðið fyrir dilkakjöt…Lesa meira

true

Skemmdarverk í Einkunnum

Umsjónarnefnd Fólkvangsins Einkunna hittist í Einkunnum í byrjun júlí til að skipuleggja starfið fram undan. Ábending hafði borist um skemmdarverk í fræðslurjóðri. Nefndin gekk um fólkvanginn og skoðaði aðstæður. Teknar voru myndir og lagfært í kringum eldstæðið. Búið var að brenna trjáboli, greinar og hluta af girðingu og dreifa um svæðið. Ákveðið var að forgangsraða…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fór víða að þessu sinni

Fjórir kappar tókust hart á um sigur í Vestfjarðavíkingnum 2022. Þessi rótgrónasta aflraunakeppni landsins var haldin dagana 1. til 3. júlí síðastliðinn, þrítugasta árið í röð. Afmælisvíkingurinn hófst á Patreksfirði á föstudeginum og síðan barst leikurinn seinna dags til Reykhóla. Á laugardegi var tekist á suður um í Búðardal og á Hellissandi og lauk keppni…Lesa meira

true

Áhugamannamót Íslands í hestaíþróttum fer fram á Akranesi

Áhugamannamót í hestaíþróttum mun fara fram næstu helgi, 15.-17. júlí á félagssvæði Dreyra að Æðarodda á Akranesi. Mótið er fyrir þá knapa sem eru 22 ára og eldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum tveimur árum. Keppt verður í töltgreinum, fjórgangi, fimmgangi, gæðingaskeiði og flugskeiði. Skráningarfrestur á mótið rennur út í kvöld, á…Lesa meira