Fréttir

true

Um 400 ungmenni mættu á Landsmót Landsbjargar

Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru haldin annað hvert ár en alls eru 48 unglingadeildir starfandi um land allt. Björgunarsveitafólk framtíðarinnar stígur oftar en ekki sín fyrstu skref í unglingastarfi. Þar fá þau leiðsögn frá reyndu björgunarsveitafólki, öðlast færni og þekkingu á björgunarstörfum og læra að athafna sig í kraftmikilli náttúru landsins. Starfið eru fyrir alla…Lesa meira

true

Fyrirlestur í kvöld – Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína

Í kvöld kl. 20 flytur Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Arla Foods, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Frá Íslandi til Nígeríu með viðkomu í Kína“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri mun segja frá reynslu sinni af búsetu og störfum í fjarlægum…Lesa meira

true

Skallagrímur burstaði Reyni

Skallagrímur og Reynir Hellissandi mættust í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi á Skallagrímsvelli í Borgarnesi og unnu heimamenn stórsigur, 6-0. Það var fljótt ljóst hvert stefndi í leiknum því eftir aðeins sjö mínútur hafði Elís Dofri Gylfason skorað tvö mörk með tveggja mínútna millibili. Eftir tæplega hálftíma leik bætti Alexis Alexandrenne…Lesa meira

true

Sýning Snorra og Halldórs Ásgeirssona í Ólafsdal

Bræðurnir Snorri og Halldór Ásgeirssynir sýna verk í Ólafsdal við Gilsfjörð frá 10. júlí til 1. ágúst. Faðir þeirra var Ásgeir Hjartarson sagnfræðingur (1910-1974) en hann var sonur Ragnheiðar Torfadóttur frá Ólafsdal og Hjartar Snorrasonar frá Magnússkógum, sem var einn af skólapiltum í Ólafsdalsskólanum. Bræður Ásgeirs voru Torfi tollstjóri og Snorri skáld Hjartarson. Snorri sýnir…Lesa meira

true

Anna María og Sigurþór klúbbmeistarar Vestarr

Meistaramót Golfklúbbsins Vestarr í Grundarfirði fór fram dagana 6. til 9. júlí og voru keppendur alls 16. Í 1. flokki karla varð Sigurþór Jónsson í fyrsta sæti, Hinrik Konráðsson í öðru og Ásgeir Ragnarsson í þriðja sæti. Í 1. flokki kvenna varð Anna María Reynisdóttir sigurvegari og í 2. flokki kvenna var systir hennar Helga…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fór víða að þessu sinni

Fjórir kappar tókust hart á um sigur í Vestfjarðavíkingnum 2022. Þessi rótgrónasta aflraunakeppni landsins var haldin dagana 1. til 3. júlí síðastliðinn, þrítugasta árið í röð. Afmælisvíkingurinn hófst á Patreksfirði á föstudeginum og síðan barst leikurinn seinna dags til Reykhóla. Á laugardag var tekist á suður um í Búðardal og á Hellissandi og lauk keppni…Lesa meira

true

Hákon ráðinn þjóðgarðsvörður

Hákon Ásgeirsson hefur verið ráðinn þjóðgarðsvörður í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Hann er með BSc og MSc í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Einnig lauk hann námi í garðyrkjufræði frá sama skóla. Hákon starfaði sem landvörður í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli sumrin 2006 – 2009 og 2011. Frá hausti 2011 – 2016 starfaði hann sem sérfræðingur á sunnanverðum…Lesa meira

true

Björn Bjarki er nýr sveitarstjóri Dalabyggðar

Björn Bjarki Þorsteinsson verður næsti sveitarstjóri í Dalabyggð, en skrifað var undir samning við hann fyrr í dag. Bjarki hefur starfað sem framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalarheimilis í Borgarnesi, síðastliðin 15 ár. Hann hefur m.a. setið í stjórn Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu síðastliðin 10 ár, lengst af sem varaformaður og síðar formaður þar til í…Lesa meira

true

Vestlenskt hestafólk uppskar vel á Landsmóti á Hellu

Í liðinni viku var Landsmót hestamanna haldið á Hellu á Rangárvöllum. Veðrir spilaði stórt hlutverk á mótinu, var fremur fúlt flesta mótsdagana. Á fimmtudeginum þurfti að fresta dagskrá og fella dagskrárliði út, meðal annars hópreiðina. Á mótinu kom fram rjóminn af íslenskum gæðingum og knöpum en einkunnir voru afburða háar og oft mjótt á munum…Lesa meira

true

Björn Viktor og Vala María klúbbmeistarar Leynis

Meistaramót golfklúbbsins Leynis á Akranesi var haldið dagana 6. til 9. júlí og aldrei fyrr hefur mótið verið svo fjölmennt eins og í ár. Alls tóku um 170 kylfingar þátt í mótinu en keppt var í tólf flokkum. Vegna veðurspár og aðstæðna á Garðavelli var felld niður umferð dagsins á fimmtudeginum og þá var hávaðarok…Lesa meira