
Halldór við verk sitt. Ljósm. aðsend.
Sýning Snorra og Halldórs Ásgeirssona í Ólafsdal
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bræðurnir Snorri og Halldór Ásgeirssynir sýna verk í Ólafsdal við Gilsfjörð frá 10. júlí til 1. ágúst. Faðir þeirra var Ásgeir Hjartarson sagnfræðingur (1910-1974) en hann var sonur Ragnheiðar Torfadóttur frá Ólafsdal og Hjartar Snorrasonar frá Magnússkógum, sem var einn af skólapiltum í Ólafsdalsskólanum. Bræður Ásgeirs voru Torfi tollstjóri og Snorri skáld Hjartarson.\r\n\r\nSnorri sýnir nýlegar litblýantsteikningar gerðar á pappír sem settar verða upp í Suðurstofu skólahússins á fyrstu hæð.\r\n\r\nHalldór er með útiverk sem ber heitið „Orrustan um vindinn“ þar sem m.a. má sjá atgeirsodd sem snýst í takt við vindáttina, knúinn af þremur stálskálum er tengjast þriggja metra hárri járnstöng er rís úr jörðinni. Þar í kring er fuglsfjöðrum stungið niður ásamt nokkrum myndfánum af fuglum. Nútíð og fortíð mætast í átökum um vindorkugarða og blóðugt minni Sturlungualdar.\r\n\r\nÞessi verk eru liður í sýningaröðinni Umhverfing 4 sem fram ferð á Vestfjörðum, Ströndum og í Dölum í sumar.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}