Fréttir

true

Kalt í veðri og slydda á fjallvegum norðan til á landinu

Næstu daga er spáð norðanátt á landinu, blæstri og fremur köldu veðri miðað við árstíma. Spáð er dálítilli rigningu á norðurhelmingi landsins og slyddu til fjalla þar sem hiti verður undir frostmarki á fjallvegum. Vegagerðin varar þannig við hálku t.d. á Steingrímsfjarðarheiði, Öxnadalsheiði og á Möðrudalsöræfum. Á morgun, föstudag verður skýjað með köflum á sunnanverðu…Lesa meira

true

Stíf sunnanátt þegar Costa Fortuna kom til Grundarfjarðar

Nú eru skemmtiferðaskipin farin að koma í röðum til Grundarfjarðar og fara flestir farþegarnir í land og taka gönguferð um bæinn eða fara upp í rútur í skoðunarferðir um svæðið. Hann blés hressilega að sunnan þegar farþegarnir af Costa Fortuna komu í land sunnudaginn 19. júní síðastliðinn en þeir létu það ekki á sig fá…Lesa meira

true

Svenni kominn á ferðina

Sveinbjörn Reyr Hjaltason slasaðist alvarlega fyrir tveimur árum síðan þegar hann var við akstur í motocross brautinni á Akranesi. Í maí á síðasta ári var áheitaverkefnið Stokkið fyrir Svenna þar sem náðist að safna fyrir sérsmíðuðu handknúnu fjallahjóli handa Svenna. Á dögunum fékk Svenni loksins nýja hjólið til sín en þá kom í ljós að…Lesa meira

true

Hjólastólaaðgengi bætt í Borgarbyggð

Verkefnið Römpum upp Ísland teygir anga sína um Borgarnes og nágrenni í vikunni, í samvinnu við Borgarbyggð. Verkefnið byrjaði á höfuðborgarsvæðinu sem Römpum upp Reykjavík en frumkvöðull þess er Haraldur Þorleifsson sem stóð fyrir átaki í að setja upp rampa fyrir hjólastóla í Reykjavík. Nú stendur Haraldur fyrir verkefninu Römpum upp Ísland þar sem öll…Lesa meira

true

Hilmar Örn ráðinn organisti og kórstjóri hjá Akraneskirkju

Á dögunum var auglýst eftir organista og kórstjóra við Akraneskirkju. Fjórar umsóknir bárust og hefur sóknarnefndin boðið Hilmari Erni Agnarssyni starfið. Hilmar Örn hefur starfað í afleysingum við Akraneskirkju undanfarið ár. Hann er menntaður í Þýskalandi og hefur langa reynslu sem organisti; hefur starfið við Grafarvogskirkju, Kristskirkju í Reykjavík, en lengst var hann organisti við…Lesa meira

true

Hið árlega Snæfellsjökulshlaup verður um helgina

Um næstu helgi verður árlegt Snæfellsjökulshlaup, að þessu sinni haldið í tólfta skiptið. Hlaupið er er eitt fremsta utanvegahlaup landsins, þar sem hlaupnir eru 22 kílómetrar frá Arnarstapa, yfir Jökulhálsinn og til Ólafsvíkur. Þátttakendur fá að upplifa einstaka náttúrufegurð og á stundum krefjandi aðstæður. Á vef Snæfellsbæjar er greint frá því að búist er við…Lesa meira

true

Skallagrímur aftur á sigurbraut

Ísbjörninn og Skallagrímur mættust í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Kórnum í Kópavogi. Eina mark leiksins kom sex mínútum fyrir leikslok þegar Elís Dofri Gylfason tryggði sigur Skallagríms og kom þeim í annað sæti riðilsins. Þrjú lið virðast eins og sakir standa berjast um þessi tvö…Lesa meira

true

Keppir á Landsmóti 50+ í Borgarnesi um næstu helgi

Garðar Jónsson málari er fæddur og uppalinn í Borgarnesi en hefur síðan búið á Akranesi og nú í Hvalfjarðarsveit. Hann hefur stundað íþróttir alla sína tíð ásamt því að þjálfa meistaraflokk bæði í fótbolta og körfubolta víðs vegar um land. Hann hyggst nú keppa á Landsmóti 50+ sem haldið verður í Borgarnesi um helgina. Garðar…Lesa meira

true

Hreppslaug verður opnuð á næstu dögum

Hreppslaug er sundlaug í Skorradal sem byggð var á þriðja áratug liðinnar aldar. Laugin hefur í áratugi verið notuð fyrir skólasund barna af Hvanneyri og úr nágrannasveitunum; Andakíl og Skorradal. Hefð er svo fyrir að opna laugina fyrir almenning um hvítasunnuhelgi ár hvert og stendur hún opin yfir sumartímann. Hreppslaug nýtur mikilla vinsælda á sumrin…Lesa meira

true

ÍA og FH gerðu jafntefli í tilþrifalitlum leik

Skagamenn tóku á móti FH-ingum í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í roki og rigningu á Akranesvelli. FH mætti til leiks með nýja þjálfara í brúnni, þá Eið Smára Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson, sem tóku við um helgina af Ólafi Jóhannessyni sem var látinn taka pokann sinn. Það var…Lesa meira