
Gunnar Örn Kárason við Hreppslaug með nýbyggt laugarhúsið í baksýn. Ljósm. sþ.
Hreppslaug verður opnuð á næstu dögum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hreppslaug er sundlaug í Skorradal sem byggð var á þriðja áratug liðinnar aldar. Laugin hefur í áratugi verið notuð fyrir skólasund barna af Hvanneyri og úr nágrannasveitunum; Andakíl og Skorradal. Hefð er svo fyrir að opna laugina fyrir almenning um hvítasunnuhelgi ár hvert og stendur hún opin yfir sumartímann. Hreppslaug nýtur mikilla vinsælda á sumrin en meðalfjöldi gesta er um 5000 manns yfir sumarmánuðina. Síðastliðin tvö ár hefur sundlaugin hins vegar verið lokuð. Ákveðið var að loka henni sumarið 2020 og endurbyggja aðstöðuna við laugina. Á næstu dögum mun svo verða opnuð ný og endurbætt aðstaða við Hreppslaug. Byggt var nýtt hús í staðinn fyrir gamla laugarhúsið. Blaðamaður hitti að máli Gunnar Örn Kárason, gjaldkera Ungmennafélagsins Íslendings, en félagið stendur fyrir framkvæmdunum við laugina.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}