Fréttir

true

Mikil fjölgun nemenda á milli ára

Nemendur á skólastigum ofan grunnskóla hér á landi voru 46.328 haustið 2020 og hafði fjölgað um 4.721 frá hausti 2019 eða um 11,3%. Þetta er næstmesti fjöldi nemenda á þessum skólastigum sem mælst hefur samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en lítið eitt fleiri nemendur stunduðu nám haustið 2011. Nemendum fjölgaði á öllum skólastigum og á öllum…Lesa meira

true

Jónína Bergmann verðlaunuð fyrir leik sinn í Rán

Íslenska stuttmyndin Rán hlaut verðlaun fyrir bestu leikkonuna á alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem fram fór í Asti á Ítalíu skömmu fyrir jól. Það var Jónína Margrét Bergmann frá Háafelli Hvítársíðu sem hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Rán var tekin upp á Vestfjörðum á vordögum 2020 skömmu eftir að fimm manna samkomubanni var aflétt á…Lesa meira

true

Áfram er mikill fjöldi að greinast með smit

Í gær greindust 463 með Covid-19 smit innanlands og níu til viðbótar á landamærunum, alls 472 einstaklingar. Tölur smitaðra eru nú komnar yfir þúsund á hverja hundrað þúsund íbúa. 128 þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu, eða rúmlega fjórðungur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild lögreglunnar. Hér á Vesturlandi eru…Lesa meira

true

Stóraukin uppbygging í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun 2023 til 2025 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness 14. desember. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Helstu atriði fjárhagsáætlunar 2022 eru að gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2021, eða 14,52%, gjaldskrár hækka um 3,5%, álagningarprósentur fasteignaskatta verða óbreyttar og verður 0,2514 fyrir…Lesa meira

true

Annar stærsti lottóvinningur frá upphafi

Í útdrætti í Víkingalottói síðastliðinn miðvikudag var Íslendingur sem datt í lukkupottinn. Hreppti hann annan stærsta vinning sem hingað til lands hefur komið frá upphafi; 439 milljónir króna. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að miðaeigandinn hafi átt miðann sinn í áskrift. „Það var lítil fjölskylda sem vann stóra vinninginn. Fjölskyldufaðirinn, sem er um…Lesa meira

true

Brautarholt 17 best skreytta húsið í Snæfellsbæ

Hefð hefur skapast fyrir því að velja jólahús Snæfellsbæjar og hefur menningarnefnd sveitarfélagsins óskað eftir tillögum frá bæjarbúum. Árið í ár var engin undantekning og að þessu sinni voru það hjónin Inga Jóhannesdóttir og Ágúst Sigurðsson sem fengu viðurkenningu fyrir fallegar skreytingar á húsi sínu að Brautarholti 17. Fengu þau afhent gjafabréf á Þorláksmessu. Á…Lesa meira

true

Hulda söng Vetrarljós

Tuttugasti og fjórði og jafnframt síðasti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var söngspíran og hjúkrunarfræðingurinn á sjúkrahúsinu á Akranesi, Hulda Gestsdóttir sem opnaði gluggann. Hulda flutti lagið Vetrarljós eftir Lárus Sighvatsson, fyrrverandi skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Hljómsveitarstjóri hússins, Birgir Þórisson útsetti lagið og textinn er einnig eftir Lárus.…Lesa meira

true

Katrín Valdís Söng Gabríelu

Tuttugasti og þriðji gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður á Þorláksmessu af henni Katrínu Valdísi Hjartardóttur sem söng hið mjög svo frambærilega jólalag, Söngur Gabríelu. Skagamenn kannast væntanlega margir við hana úr sýningunni Hunangsflugur og villikettir hjá Grundaskóla. Katrín Valdís hefur sungið frá því hún var pínulítill krakki. Mamma hennar segir reyndar…Lesa meira

true

Breytingar á staðgreiðslu um áramót

Í frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 er tillaga að lagabreytingu um viðmið fyrir árlega uppfærslu skattleysis- og þrepamarka. Þessi breyting er síðasti áfangi kerfisbreytinga tekjuskatts einstaklinga sem kynntar voru árið 2019. Tillagan felur í sér að miðað verður við ársbreytingu vísitölu neysluverðs ásamt mati á þróun langtímaframleiðni. Miðað verður við 1,0%…Lesa meira