{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í útdrætti í Víkingalottói síðastliðinn miðvikudag var Íslendingur sem datt í lukkupottinn. Hreppti hann annan stærsta vinning sem hingað til lands hefur komið frá upphafi; 439 milljónir króna. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að miðaeigandinn hafi átt miðann sinn í áskrift. „Það var lítil fjölskylda sem vann stóra vinninginn. Fjölskyldufaðirinn, sem er um þrítugt, hafði gerst áskrifandi eftir að stóri vinningurinn kom til landsins síðastliðið sumar og það var ekki lengi að bera árangur, því hann er nú rétt tæpum 439 milljónum krónum ríkari,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nVinningshafinn segist strax hafa fengið ákveðinn fiðring þegar fréttir byrjuðu að birtast á miðvikudagskvöldið um að áskrifandi á Íslandi hefði tekið þann stóra en hann ákvað að bíða með að athuga tölurnar enda á leiðinni á jólatónleika. „Mig langaði líka að upplifa þetta símtal sem ég hef svo oft heyrt um,“ sagði hann aðspurður og, mikið rétt, símtalið frá Íslenskri getspá kom á endanum! Vinningshafinn og kærastan eru nú í íbúðaleit fyrir sig og lítið barn sem þau eiga. Það var þó ekki kærastan sem fékk fréttirnar fyrst. „Mín fyrstu viðbrögð voru að hringja í mömmu!“ Hann kveðst ætla að þiggja þá fjármálaráðgjöf sem Íslensk getspá býður öllum þeim sem hreppa stóra vinninga.",
"innerBlocks": []
}