{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tuttugasti og þriðji gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður á Þorláksmessu af henni Katrínu Valdísi Hjartardóttur sem söng hið mjög svo frambærilega jólalag, Söngur Gabríelu. Skagamenn kannast væntanlega margir við hana úr sýningunni Hunangsflugur og villikettir hjá Grundaskóla. Katrín Valdís hefur sungið frá því hún var pínulítill krakki. Mamma hennar segir reyndar að hún hafi verið farin að syngja áður en hún fór að tala. Hún álpaðist inn í Grundaskóla á sínum tíma og þakkar nánast Flosa Einarssyni veru sína á Akranesi. Hún segir reyndar að Flosi og Gutti heitinn skólastjóri (Guðbjartur Hannesson) hafi selt henni hugmyndina að flytja á Akranes.\r\n\r\nKatrín Valdís er þessa dagana kennari í Grundaskóla. Þá syngur hún í kór Lindakirkju auk þess að vera í kirkjukór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar, hinum ágæta og mjög svo frambærilega, og því miður fyrrum, organista, Sveini Arnari Sæmundssyni. Lagið er hins vegar Söngur Gabríelu. Lagið er eftir Stefan Nilsson og textinn eftir Kristján Hreinsson.\r\n\r\n<a href=\"https://fb.watch/a4boF_CBdD/\">Hlekk á lagið má finna hér.</a>",
"innerBlocks": []
}