Fréttir

true

FKA óskar eftir tilnefningum um konur í atvinnulífinu

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, óskar nú eftir tilnefningum fyrir viðurkenningarhátíð sem haldin verður í janúar næstkomandi þar sem konur úr atvinnulífinu verða heiðraðar. „Við viljum fá nöfn kvenna af landinu öllu, en hægt er að senda inn tilnefningar til og með 25. nóvember nk,“ segir í tilkynningu. „FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og…Lesa meira

true

Útvarp Akranes verður dagana 26. til 28. nóvember

Sundfélag Akraness sendir Útvarp Akranes út á aðventunni eins og venja er. Útvarp Akranes er löngu orðinn fastur liður í jólaundirbúningi Akurnesinga en útvarpið er ein mikilvægasta fjáröflun sundfélagsins. Félagið hefur staðið fyrir útvarpinu á aðventunni allar götur síðan 1988. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda en mikill fjöldi Akurnesinga og gesta hefur komið…Lesa meira

true

Jólamarkaður Össu

Jólamarkaður Handverksfélagsins Össu í Reykhólasveit verður opnaður fyrstu helgina í aðventu, 27. og 28. nóvember næstkomandi. Þá verður einnig opið næstu tvær helgar á eftir, 3.-5. des og 10.-12. des. Frá þessu segir á vef Reykhólahrepps en að venju verða félög og samtök í samstarfi við Össu; Lions, nemendafélagið, krabbameinsfélagið, björgunarsveitin, skíðafélagið, kvenfélagið og jafnvel…Lesa meira

true

Vatnslaust á hluta Akraness

Vatnslaust er nú á hluta Akraness. Hvorki rennur heitt vatn né kalt úr krönum Skagamanna nokkuð víða á Skaganum. Veitur höfðu auglýst lokun á afmörkuðu svæði vegna framkvæmda við Faxatorg en vegna bilunar er hið lokaða svæði mun stærra en til stóð. Hin fyrirhugaða lokun átti að standa til kl. 16:00 en ekki er ljóst…Lesa meira

true

Fleiri ferðamenn fóru um flugstöð

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 103 þúsund í októbermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Horfa þarf allt til árins 2015 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í októbermánuði. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða tæplega þriðjungur. Frá áramótum hafa 548 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 17,3% fjölgun miðað…Lesa meira

true

Lilja Björk valin í æfingahóp U17 kvenna

Landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu, Magnús Örn Helgason, hefur valið 18 manna æfingahóp sem mun koma saman dagana 23. og 24. nóvember í Skessunni í Hafnarfirði og á Hlíðarenda í Reykjavík. Í þessum hópi er Skagastúlkan Lilja Björk Unnarsdóttir en næsta verkefni liðsins er önnur umferð undankeppni EM 2022 og verður dregið í riðla í…Lesa meira

true

Bætt lýsing á göngustíg

Nýlega var sett upp lýsing á göngustígnum sem liggur frá Heiðarbraut á Akranesi niður að Brekkubæjarskóla. Mikill munur er nú fyrir nemendur og foreldra þeirra að ganga þennan stíg í skólann þegar hann er orðinn svona vel upplýstur en áður var hálf skuggalegt að fara þarna í myrkri og þá sérstaklega fyrir börnin.Lesa meira

true

Tveir ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Tveir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu sitthvorn daginn í vikunni sem leið vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Aðfararnótt sunnudags var ökumaður stöðvaður rétt utan við Borgarnes og á mánudaginn annar ökumaður á móts við afleggjarann að Ferjukoti. Báðir ökumenn svöruðu jákvætt á fíkniefnastrokprófi og voru í kjölfarið handteknir og færðir á lögreglustöð. Mál…Lesa meira

true

Umhverfisvottun EarthCheck þrettánda árið í röð

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna nú EarthCheck umhverfisvottun 13. árið í röð en þau fengu fyrst vottun frá vottunarsamtökunum árið 2008, fyrst allra samfélaga í Evrópu. Í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar segir að með samtakamætti á Snæfellsnesi fyrir nær tveimur áratugum hafi sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafið ferli til að fá umhverfisvottun, eitt af þeim skrefum sem…Lesa meira

true

Héldu íbúafund í Breiðabliki um sameiningarmál

Síðastliðið þriðjudagskvöld var haldinn íbúafundur í félagsheimilinu Breiðabliki á Snæfellsnesi um stöðu sameiningarviðræðna Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Markmið fundarins var að kynna stöðu verkefnisins og næstu skref, fjalla um stöðu málaflokka í starfsemi sveitarfélaganna og mögulegar breytingar ef til sameiningar kemur. Einnig var markmiðið að heyra sjónarmið íbúa áður en sameiningartillagan verður fullmótuð. Fundargestir…Lesa meira