Andrea Björnsdóttir, Skagamaður ársins 2019, mætti í viðtal hjá Hlédísi í Útvarpi Akranes 2020.

Útvarp Akranes verður dagana 26. til 28. nóvember

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sundfélag Akraness sendir Útvarp Akranes út á aðventunni eins og venja er. Útvarp Akranes er löngu orðinn fastur liður í jólaundirbúningi Akurnesinga en útvarpið er ein mikilvægasta fjáröflun sundfélagsins. Félagið hefur staðið fyrir útvarpinu á aðventunni allar götur síðan 1988. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda en mikill fjöldi Akurnesinga og gesta hefur komið við sögu útvarpsins á þessum árum.\r\n\r\nAð sögn Guðrúnar Guðbjarnadóttur, varaformanns Sundfélags Akraness, má segja að dagskráin sé tilbúin. „Það sem er óvenjulegt og gleðilegt í ár er að aldrei hafa eins margir haft frumkvæði og óskað eftir að fá að vera með í dagskránni.“ Hún nefnir afar fróðlega þátt í umsjón Arnar Óðins Arnþórssonar þar sem hann fjallar um Skagablaðið 1984-5 og tónlist, tíðaranda, áhugaverðar fréttir og bæjarlíf þess tíma. Rokkþingið verður á sínum stað og rokkþingmennirnir Tómas Andrésson og Jón Allansson mæta með bílfarma af vínylplötum í hljóðstofu.\r\n\r\nÞá nefnir Guðrún hefð sem hefur skapast undanfarin ár þar sem árgangar Skagamanna sjá um þátt. Í ár er komið að árgangi ´71. Í þættinum verður eitt og annað skoðað. Þau ætla að skoða svolítið fæðingarárið auk þess að taka valda kafla úr uppvextinum. Þá má ekki gleyma jólaþáttum grunnskólabarna sem notið hafa mikilla vinsælda. Grundaskóli ríður á vaðið með þætti á laugardagsmorgni og Brekkubæjarskóli á sunnudagsmorgni.\r\n\r\nÚtsending Útvarps Akraness stendur yfir dagana 26. til 28. nóvember eins og fyrr segir. Eins og venjulega eru það Hlédís og Óli Palli sem hefja leikinn með þættinum Skaginn syngur inn jólin klukkan 13:00 á föstudeginum. Síðan rekur hver þátturinn annan þar til yfir lýkur á sunnudeginum.",
  "innerBlocks": []
}
Útvarp Akranes verður dagana 26. til 28. nóvember - Skessuhorn