
Félagsheimilið Breiðablik og Gestastofa.
Héldu íbúafund í Breiðabliki um sameiningarmál
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðið þriðjudagskvöld var haldinn íbúafundur í félagsheimilinu Breiðabliki á Snæfellsnesi um stöðu sameiningarviðræðna Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Markmið fundarins var að kynna stöðu verkefnisins og næstu skref, fjalla um stöðu málaflokka í starfsemi sveitarfélaganna og mögulegar breytingar ef til sameiningar kemur. Einnig var markmiðið að heyra sjónarmið íbúa áður en sameiningartillagan verður fullmótuð. Fundargestir í Breiðabliki voru rúmlega 40, en auk þess fylgdust tæplega 70 með fundinum í streymi. „Umræður í Breiðabliki voru líflegar og bárust tæplega 60 spurningar og ábendingar rafrænt í gegnum samráðskerfið. Samstarfsnefndin mun fara yfir ábendingarnar á næsta fundi,“ segir í tilkynningu frá samráðsnefnd inni á vefsíðunni snaefellingur.is Þar segir jafnframt að áætlað er að álit samstarfsnefndar og sameiningartillaga verði tilbúin í lok nóvember og að kynningarferli hefjist fyrir jól og nái hámarki í lok janúar. Sameiningarkosningar munu fara fram í febrúar.\r\n\r\nÁ síðunni snaefellingar.is má finna kynningarefni sem lagt var fram á fundinum, upptöku og þær spurningar og ábendingar sem íbúar lögðu fram í gegnum menti.com. Auk þess bárust spurningar og ábendingar úr sal. Þar eru sömuleiðis birt drög að minnisblöðum með hugmyndum sem nefndin var að kynna fyrir íbúum og kalla eftir ábendingum áður en loka sameiningartillaga verður sett fram.",
"innerBlocks": []
}