
Lilja Björk Unnarsdóttir. Ljósm. kfia
Lilja Björk valin í æfingahóp U17 kvenna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu, Magnús Örn Helgason, hefur valið 18 manna æfingahóp sem mun koma saman dagana 23. og 24. nóvember í Skessunni í Hafnarfirði og á Hlíðarenda í Reykjavík. Í þessum hópi er Skagastúlkan Lilja Björk Unnarsdóttir en næsta verkefni liðsins er önnur umferð undankeppni EM 2022 og verður dregið í riðla í henni í desember. Í hópnum má finna þrjár stúlkur af landsbyggðinni en auk Lilju Bjarkar eru þær Iðunn Rán Gunnarsdóttir frá KA Akureyri og Margrét Rún Stefánsdóttir frá Tindastól á Sauðárkróki einnig í hópnum. Lilja Björk, sem er fædd árið 2006, lék sjö leiki í sumar með 3. flokki ÍA og skoraði fimm mörk, sex leiki með 2. flokki og skoraði níu mörk og einn leik með meistaraflokki ÍA.",
"innerBlocks": []
}