{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 103 þúsund í októbermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Horfa þarf allt til árins 2015 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í októbermánuði. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða tæplega þriðjungur. Frá áramótum hafa 548 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 17,3% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 467 þúsund. Borið saman við 2019 er fækkunin 68%.",
"innerBlocks": []
}