{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tveir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu sitthvorn daginn í vikunni sem leið vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Aðfararnótt sunnudags var ökumaður stöðvaður rétt utan við Borgarnes og á mánudaginn annar ökumaður á móts við afleggjarann að Ferjukoti. Báðir ökumenn svöruðu jákvætt á fíkniefnastrokprófi og voru í kjölfarið handteknir og færðir á lögreglustöð. Mál beggja ökumanna eru komin í hefðbundið ferli.",
"innerBlocks": []
}
Tveir ökumenn undir áhrifum fíkniefna - Skessuhorn