
Vatnslaust svæði á Akranesi.
Vatnslaust á hluta Akraness
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vatnslaust er nú á hluta Akraness. Hvorki rennur heitt vatn né kalt úr krönum Skagamanna nokkuð víða á Skaganum. Veitur höfðu auglýst lokun á afmörkuðu svæði vegna framkvæmda við Faxatorg en vegna bilunar er hið lokaða svæði mun stærra en til stóð.\r\n\r\nHin fyrirhugaða lokun átti að standa til kl. 16:00 en ekki er ljóst á þessari stundu hvort sú tímasetning stenst.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá Veitum segir: „Vegna bilunar er kaldavatnslaust á Garðabraut, Jaðarsbraut, Sandabraut og Skagabraut fös. 19. nóvember kl. 09:00-16:00. Sjá nánar á korti.\r\n\r\nVið vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið. Gættu þess þó að það sé ekki alveg sjóðheitt því það getur sprengt postulín.\r\n\r\nÞurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.\r\n\r\nStarfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.“",
"innerBlocks": []
}