Fréttir

true

Vilja að Herjólfur hefji siglingar um Breiðafjörð hið fyrsta

Á 66. fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Ísafirði dagana 22. og 23. otkóber, var ályktun um samgöngumál áberandi en eins og segir í inngangi hennar hafa Vestfirðir staðið aftar öðrum landshlutum á öllum sviðum samgöngukerfisins á liðnum árum. Fjórðungsþing Vestfirðinga krefst þess að samgöngumál á Vestfjörðum verði sett í forgang. Breiðafjarðarferjan Baldur fær sína…Lesa meira

true

Grindin komin upp á netaverkstæði G.Run hf

Góður gangur er í framkvæmdum við nýtt netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði. Nú eru starfsmenn á fullu við að reisa upp stálgrindurnar og gengur verkið vel. Það verður væntanlega búið að reisa og loka húsinu innan nokkurra vikna en þá er öll innivinnan eftir. Stefnt er að því að taka húsið í notkun fljótlega…Lesa meira

true

Sýningin Samtal menningar og náttúru stendur yfir á Sólmundarhöfða

Sýningin Samtal menningar og náttúru hófst um helgina á Sólmundarhöfða á Akranesi en sýningin er hluti af lista- og menningarhátíðinni Vökudögum. Listakonurnar og vinkonurnar Borghildur Jósúadóttir, Bryndís Siemsen, Eygló Gunnarsdóttir og Steinunn Guðmundsdóttir standa að sýningunni undir handleiðslu Helenu Guttormsdóttur. Tilgangurinn með sýningunni er að varpa ljósi á mikilvægi svæðisins með því að opna Árnahús…Lesa meira

true

Margföld eftirspurn eftir greiðslumarki í mjólk

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust fyrir daginn í dag 187 gild tilboð um kaup og sölu á síðasta tilboðsmarkaði ársins fyrir greiðslumark mjólkur. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 305 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði. Skemmst…Lesa meira

true

Andlát – Bjarni Guðráðsson í Nesi

Bjarni Guðráðsson bóndi í Nesi í Reykholtsdal er látinn 86 ára að aldri eftir stutt veikindi. Bjarni fæddist á Skáney 13. janúar 1935. Foreldrar hans voru Guðráður Davíðsson og Vigdís Bjarnadóttir. Þau byggðu nýbýlið Nes úr Skáneyjarjörðinni og fluttu þangað með tvö barna sinna 1937. Bjarni varð eftir í fóstri hjá ömmu sinni og afa;…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Hetti

Skagamenn gerðu sér langa ferð til Egilsstaða á föstudagskvöldið og léku gegn liði Hattar í 1. deild karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn var Höttur eina liðið í deildinni sem var taplaust en Skagamenn tapað öllum fimm leikjum sínum. Heimamenn tóku fljótt forystuna í leiknum og staðan eftir fyrsta leikhluta 29:13 Hetti í vil. Skagamenn komu…Lesa meira

true

Samtök leigjenda hafa verið endurreist

Aðalfundur samtaka leigjenda, sem haldinn var 30. október síðastliðinn, skorar á alla leigjendur að ganga til liðs við samtökin og taka þátt í löngu tímabærri hagsmunabaráttu leigjenda og þeirra sem ekki komast inn á íbúðamarkaðinn. „Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Stjórnvöld uppfylla ekki lagaskyldu sína gagnvart leigjendum og…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði stórt gegn Njarðvík í VÍS bikarnum

Skallagrímkonur sóttu ekki gull í greipar Njarðvíkur í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik í Fjósinu í Borgarnesi á laugardaginn. Gestirnir höfðu mikla yfirburði í leiknum, staðan eftir fyrsta leikhluta var 11:24 og í hálfleik var munurinn orðinn 20 stig, 22:42. Í þriðja leikhluta skoruðu Skallagrímskonur aðeins fjögur stig gegn 25 stigum gestanna og staðan orðin…Lesa meira

true

Landsátak í sundi hófst í dag

Landsátakið Syndum hófst í dag en átakið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Sundsambands Íslands og stendur til 28. nóvember. Syndum er hvatningarátak þar sem landsmenn allir eru hvattir til að synda, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. „Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans.…Lesa meira

true

Snæfell vann KR í VÍS bikar kvenna

Snæfell lék gegn liði KR í 16-liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi og náði sigri í hörkuleik, 79-73. Snæfell náði góðum kafla um rúman miðjan fyrsta leikhluta, komst í 20:9 en KR náði aðeins að minnka muninn og staðan 24:16 við flautið. Snæfell náði að halda þessu forskoti allan annan…Lesa meira