Landsátak í sundi hófst í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landsátakið Syndum hófst í dag en átakið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Sundsambands Íslands og stendur til 28. nóvember. Syndum er hvatningarátak þar sem landsmenn allir eru hvattir til að synda, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. „Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja,“ segir tilkynningu um átakið. Allir geta tekið þátt með því að skrá sig á syndum.is en þeir sem hafa tekið þátt í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað sama notendanafn. Fólk skráir niður þá vegalengd sem það syndir og á forsíðu syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi í kringum Ísland landsmenn hafa synt.",
  "innerBlocks": []
}
Landsátak í sundi hófst í dag - Skessuhorn