Lista- og vinkonurnar Eygló Gunnarsdóttir, Borghildur Jósúadóttir, Bryndís Siemsen og Steinunn Guðmundsdóttir.

Sýningin Samtal menningar og náttúru stendur yfir á Sólmundarhöfða

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sýningin Samtal menningar og náttúru hófst um helgina á Sólmundarhöfða á Akranesi en sýningin er hluti af lista- og menningarhátíðinni Vökudögum. Listakonurnar og vinkonurnar Borghildur Jósúadóttir, Bryndís Siemsen, Eygló Gunnarsdóttir og Steinunn Guðmundsdóttir standa að sýningunni undir handleiðslu Helenu Guttormsdóttur. Tilgangurinn með sýningunni er að varpa ljósi á mikilvægi svæðisins með því að opna Árnahús ákveðna daga og vera með sýningu á mandölum úr náttúrulegum efnivið úr umhverfinu og textíl- og myndlistarverkum er myndu á einhvern hátt tengjast svæðinu. Miklar menningarminjar eru á svæðinu og mikill líffræðilegur fjölbreytileiki í plöntu- og dýralífi. Það er von listakvennanna að sýningin veki athygli á mikilvægi og sérstöðu svæðis sem lætur lítið yfir sér.\r\n\r\nAð sögn Borghildar felst nýsköpun verkefnisins í samþættingu listgreina, náttúru og menningararfs á Sólmundarhöfða, stað sem hefur litla athygli í dag en býr yfir miklum menningar- og söguverðmætum fyrir Akranes. „Upphaflega ætluðum við að nýta Árnahúsið og hafa sýninguna sumarið 2020 en urðum að fresta því vegna Covid.  Í haust kom svo í ljós að vatn hafði lekið inn í húsið og það er nánast ónýtt. Sá möguleiki var því úr sögunni. Við ákváðum því að setja sýninguna upp utandyra og áttum yndislegan dag með gestum við opnunina um helgina í þessu dásamlegu veðri.“\r\n\r\nÁður hafa þær vinkonur haldið fjórar sýningar á Vökudögum. Með nemendum Grundaskóla. 2013 héldu þær sýninguna Akrafjall - sóknarfæri til sköpunar, 2014 Lítum okkur nær - Sementsverksmiðja og Breiðin, 2015 var það sýningin Þar sem maður hittir mann og að lokum Umbreyting - Eitthvað verður annað sem haldin var 2017.\r\n\r\n„Fyrsta sýningin var í Akrasporti sem hafði ekki verið nýtt til sýningarhalds áður en var síðan nýtt fyrir sýningar á eftir okkur, næsta sýning var í gömlu tilraunastofunni í Sementsverksmiðjunn og eftir það var það húsnæði nýtt fyrir nokkra listamenn, þriðja sýningin var í núverandi Grjóti. Við þrifum, máluðum og gerðum húsnæðið huggulegt sem var síðan selt og þar hafa verið margar sýningar. Síðasta sýning okkar með nemendum var svo í gamla matasalnum í Sementsverksmiðjunni. Það má því setja að með þessu sýningarhaldi höfum við haft áhrif út í samfélagið,“ segir Borghildur.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48422\" align=\"alignleft\" width=\"145\"]<img class=\"wp-image-48422 \" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Syningin-Samtal-menningar-og-natturu-hofst-um-helgina_2-600x896.jpg\" alt=\"\" width=\"145\" height=\"216\" /> Hluti verkanna á sýningunni Samtal menningar og náttúru.[/caption]\r\n\r\nAð sögn Borghildar hafa vinkonurnar verið að kynnast svæðinu á Sólmundarhöfða í gegnum þetta verkefni og eru heillaðar. „Mitt verk heitir Náttúrulegar mandölur úr gróðri sem finnst á svæðinu, Eygló litaði band úr jurtum á svæðinu sem hún nýtti í handverk, prjón, hekl, vattarsaum og fleira, hennar verk heitir Litbrigði náttúrunnar. Bryndís heillaðist af ryðinu í byggingunum og hennar verk heitir Fegurðin í ljótleikanum.  Að lokum er Steinunn sem er með blandaða tækni, en nýtir ljósmyndir af gamla Árnahúsinu, hennar verk heitir Skjáir fortíðar. „Þetta er forvitnilegt verkefni og við erum bæði stoltar og ánægðar með okkar framlag og höfum fengið mikið út úr því að vinna þessi verk og kynnast svæðinu á Sólmundarhöfða. Gestir og gangandi sýndu mandölunum mikinn áhuga á meðan ég var að búa þær til. Þær voru allar unnar á svæðinu.\r\n\r\nVið Steinunn erum líka með sýningu í Tónlistarskólanum sem ber heitið Zentangle-teikniaðferð. Þetta er um margt mjög merkileg aðferð en Zentangle hugtakið var búið til af amerískum hjónum Rick og Maria. Við höfum báðar notað þessa teikniaðferð í kennslu.“ sagði Borghildur að lokum.\r\n\r\nSýningin Samtal menningar og náttúru stendur yfir alla Vökudagana, til 7. nóvember nk.",
  "innerBlocks": []
}
Sýningin Samtal menningar og náttúru stendur yfir á Sólmundarhöfða - Skessuhorn