Fréttir

true

Samtök leigjenda hafa verið endurreist

Aðalfundur samtaka leigjenda, sem haldinn var 30. október síðastliðinn, skorar á alla leigjendur að ganga til liðs við samtökin og taka þátt í löngu tímabærri hagsmunabaráttu leigjenda og þeirra sem ekki komast inn á íbúðamarkaðinn. „Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Stjórnvöld uppfylla ekki lagaskyldu sína gagnvart leigjendum og…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði stórt gegn Njarðvík í VÍS bikarnum

Skallagrímkonur sóttu ekki gull í greipar Njarðvíkur í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik í Fjósinu í Borgarnesi á laugardaginn. Gestirnir höfðu mikla yfirburði í leiknum, staðan eftir fyrsta leikhluta var 11:24 og í hálfleik var munurinn orðinn 20 stig, 22:42. Í þriðja leikhluta skoruðu Skallagrímskonur aðeins fjögur stig gegn 25 stigum gestanna og staðan orðin…Lesa meira

true

Landsátak í sundi hófst í dag

Landsátakið Syndum hófst í dag en átakið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Sundsambands Íslands og stendur til 28. nóvember. Syndum er hvatningarátak þar sem landsmenn allir eru hvattir til að synda, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. „Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans.…Lesa meira

true

Snæfell vann KR í VÍS bikar kvenna

Snæfell lék gegn liði KR í 16-liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi og náði sigri í hörkuleik, 79-73. Snæfell náði góðum kafla um rúman miðjan fyrsta leikhluta, komst í 20:9 en KR náði aðeins að minnka muninn og staðan 24:16 við flautið. Snæfell náði að halda þessu forskoti allan annan…Lesa meira

true

Krónan veitti tveimur verkefnum á Akranesi styrk

Krónan hefur úthlutað 25 verkefnum og aðilum um sjö milljónir króna í formi samfélagsstyrkja fyrir verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar. Af þeim 25 verkefnum sem fengu styrk eru 17 á landsbyggðinni, þar af tvö á Akranesi. Muninn kvikmyndagerð hlaut styrk fyrir…Lesa meira

true

Alexandrea kom heim með silfur

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir keppti á föstudaginn á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískri bekkpressu í Vilníus í Litháen. Þar nældi hún í silfrið í -63 kg flokki þegar hún lyfti 97,5 kg og bætti þar með sinn persónulega árangur um fimm kíló. Hún reyndi við nýtt Íslandsmet í þriðju lyftu þegar hún var með 102,5 kg…Lesa meira

true

Níutíu prósent þorsks eru nýtt hér á landi

Nýting á þorski hér á landi er á heimsmælikvarða en þó má gera betur, að mati Íslenska sjávarklasans. Íslenskur sjávarútvegur hefur um árabil verið í forystu í nýtingu hliðarafurða á hvítfiski í heiminum. Verulega hallar á þau lönd sem við berum okkur saman við þegar kemur að nýtingu hliðarafurða. Þó má merkja vaxandi áhuga margra…Lesa meira

true

Reynir stýrir fyrirtækjasviði N1

Skagamaðurinn Reynir Leósson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá N1. Reynir hefur starfað síðustu þrjú ár í VÍS sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Í tilkynningu segir að Reynir hafi mikla reynslu af sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði en auk þess að leiða fyrirtækjaráðgjöf VÍS hafi hann síðustu ár sinnt starfi forstöðumanns fyrirtækjasölu Vodafone og verið…Lesa meira

true

Vökudagar settir á Akranesi

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar hófust á Akranesi síðastliðinn miðvikudag þegar Skólakór Grundaskóla reið á vaðið með fjölskyldusöngstund í Bókasafni Akraness. Vökudagar hafa verið haldnir síðan 2002. Tilgangur hátíðarinnar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi…Lesa meira

true

Harður árekstur í Hvolsdal

Mjög harður árekstur varð um hádegisbil á miðvikudag í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. Áreksturinn varð á Vestfjarðavegi, í Hvolsdal, á milli Hvols og Ársels. Tildrög árekstrarins var að fólksbifreið var ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún rakst framan á stóra sendibifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Sjúkrabílar frá Búðardal og Hólmavík…Lesa meira