Reynir stýrir fyrirtækjasviði N1

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamaðurinn Reynir Leósson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá N1. Reynir hefur starfað síðustu þrjú ár í VÍS sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Í tilkynningu segir að Reynir hafi mikla reynslu af sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði en auk þess að leiða fyrirtækjaráðgjöf VÍS hafi hann síðustu ár sinnt starfi forstöðumanns fyrirtækjasölu Vodafone og verið framkvæmdastjóri auglýsinga hjá Sagafilm. Reynir er giftur Katrínu Rós Baldursdóttur, sem vinnur í ferlastýringu hjá Össuri hf. og eiga þau tvo drengi.",
  "innerBlocks": []
}