{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýting á þorski hér á landi er á heimsmælikvarða en þó má gera betur, að mati Íslenska sjávarklasans. Íslenskur sjávarútvegur hefur um árabil verið í forystu í nýtingu hliðarafurða á hvítfiski í heiminum. Verulega hallar á þau lönd sem við berum okkur saman við þegar kemur að nýtingu hliðarafurða. Þó má merkja vaxandi áhuga margra erlendra fyrirtækja á vinnslu hliðarafurða og mörg þeirra sýna áhuga á að læra af Íslendingum í þessum efnum.\r\n\r\nSjávarklasinn hefur gert úttekt á því hversu mikinn hluti þorskafurða er nýttur hérlendis en nýjar tölur hafa ekki legið fyrir um nokkur skeið. Athugunin leiðir í ljós að Íslendingar halda enn forystu í þessum efnum og nýtingarhlutfallið er rúmlega 90% sem er töluvert umfram það sem fyrri tölur gáfu til kynna. Enn eru þó veruleg tækifæri til að vinna meira úr hliðarafurðum og skapa verðmæti og ný störf. Fullvinnsla hliðarafurða er skilgreind hér sem nýting á öllum pörtum fisksins, öðrum en fiskflakinu. Nýting hliðarafurða hefur verið lítil í mörgum þeim löndum sem við berum okkur saman eða einungis 45-55% af hvítfiski. Þarna er um veruleg verðmæti að ræða sem fara í súginn hjá öðrum þjóðum. Hér liggja því tækifæri fyrir aðrar sjávarútvegsþjóðir til að gera betur og fyrir Íslendinga að koma að þeim verkefnum með íslenska tækni og þekkingu.\r\n\r\nSamkvæmt athugunum sjávarklasans eru 35 fyrirtæki í landinu sem sinna lang stærstum hluta vinnslu hliðarafurða. Upplýsingar fengust um veltu tæplega 30 þessara fyrirtækja. Á árunum 2012 til 2019 jókst velta þeirra um 35%.",
"innerBlocks": []
}
Níutíu prósent þorsks eru nýtt hér á landi - Skessuhorn