{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mjög harður árekstur varð um hádegisbil á miðvikudag í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. Áreksturinn varð á Vestfjarðavegi, í Hvolsdal, á milli Hvols og Ársels. Tildrög árekstrarins var að fólksbifreið var ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún rakst framan á stóra sendibifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Sjúkrabílar frá Búðardal og Hólmavík voru kallaðir út.\r\n\r\nAð sögn lögreglunnar á Vesturlandi var aðkoman mjög ljót og báðar bifreiðarnar mikið skemmdar. Fólksbifreiðin sýnu meir og gengin alveg inn að ökumanni og farþega. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var fastur í bifreiðinni og þurfti að beita klippum tækjabíls til þess að ná honum út. Ökumaðurinn var mjög kvalinn og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til þess að flytja hann á bráðamóttökuna í Fossvogi. Meiðsl ökumannsins reyndust hins vegar minni háttar og er hann laus af sjúkrahúsi. Að sögn lögreglu slapp hann ótrúlega vel miðað við aðstæður. Ökumaður sendibifreiðarinnar var fluttur á heilsugæsluna í Búðardal. Hann reyndist lítið slasaður. Báðir ökumennirnir voru í bílbeltum.\r\n\r\nÖkumaður fólksbifreiðarinnar var eðli málsins samkvæmt nokkuð vankaður en man ekki hvað gerðist sem olli árekstrinum en eins og áður sagði fór hann yfir á rangan vegarhelming. Aðstæður til aksturs voru góðar, blautur vegur en skyggni gott.",
"innerBlocks": []
}