Fréttir

true

Telja að takmarka verði aðgengi að orkudrykkjum

Áhættumatsnefnd hefur að beiðni Matvælastofnunar rannsakað hvort neysla orkudrykkja, sem innihalda koffín, hafi neikvæð áhrif á heilsu ungmenna í framhaldsskólum. Niðurstaða nefndarinnar er að neysla íslenskra ungmenna sé töluvert meiri en sést hefur í erlendum rannsóknum. Framboð, aðgengi og markaðssetning orkudrykkja hérlendis virðist skila sér í því að neysla íslenskra framhaldsskólanema sé meiri en æskilegt…Lesa meira

true

Ekki í boði að flytja inn tarantúlur og snáka til landsins

Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn lögreglu á einstaklingi sem grunaður er um að hafa flutt til landsins slöngur, snáka, eðlur og tarantúlur. Slíkt er eins og flestir þekkja með öllu óheimilt, hvort sem um villt eða tamin dýr er að ræða. Refsingar liggja við brotum á lögunum. Hægt er að sækja um undanþágu til…Lesa meira

true

Siglufjörður verður heimahöfn Freyju

Nú er hafinn undirbúningur fyrir heimsiglingu varðskipsins Freyju frá Rotterdam, en það bætist nú í flota Landhelgisgæslunnar. Skipið, sem smíðað var árið 2010 hefur undanfarin ár þjónustað olíuiðnaðinn, en mun eftir lagfæringar og málun verða siglt til Íslands og fá heimahöfn á Siglufirði. Áhöfn skipsins er mætt ytra og undirbýr heimsiglinguna. Áætlað er að skipið…Lesa meira

true

Stytta sóttkví og einangrun

Almenn krafa um sóttkví fyrir þá sem hafa orðið útsettir fyrir kórónuveirusmiti hefur verið stytt úr sjö dögum í fimm, samkvæmt breytingum heilbrigðisráðherra á reglugerð að fengnum tillögum sóttvarnalæknis. Ennþá þarf að fá neikvæða niðurstöðu úr PCR prófi til þess að losna úr sóttkví, annars þarf að sæta sóttkví í 14 daga. Þá getur einangrun…Lesa meira

true

Enn eitt tap Skallagríms og þjálfarinn farinn

Skallagrímur tók á móti Njarðvík í Subway deild kvenna í körfuknattleik í Fjósinu í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímur komst yfir 4:2 í byrjun leiks en eftir fjórðu mínútu skoruðu þær ekki stig og staðan eftir fyrsta leikhluta 6:18 gestunum í vil. Vandræði Skallagríms héldu áfram í öðrum leikhluta, þær hittu nánast ekki neitt á meðan…Lesa meira

true

Verkefnið Sjóböð í Krossavík fékk hæsta frumkvöðlastyrkinn

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi settu á síðasta ári í gang verkefni um gerð viðskiptaáætlana. Var það unnið í samstarfi við Pál Kr. Pálsson ráðgjafa og fyrirtæki hans Skyggni ehf. Auglýst var eftir áhugasömum fyrirtækjum og einstaklingum til þátttöku og sóttu 14 aðilar um. Ákveðið var að velja fimm umsóknir til frekari vinnu og fengu þær…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel við Leikskólann í Stykkishólmi

Stækkun Leikskólans í Stykkishólmi gengur vel og er uppsteypa nú að klárast. Að sögn Páls Þorbergssonar verktaka er verkið á áætlun en áætluð verklok eru 28. febrúar 2022. „Við erum vel innan þess ramma,“ segir hann og bætir við að nú þegar sé hafin smíði innréttinga og því sem á að vera inni í byggingunni.…Lesa meira

true

Atvinnusýningin í Hjálmakletti í Borgarnesi á laugardaginn

Fyrir tveimur árum var ætlunin hjá Rótarýklúbbi Borgarness að standa fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi en vegna heimsfaraldursins varð hins vegar ekkert af sýningunni. Nú á að blása til sóknar á ný og næstkomandi laugardag verður hún haldin í þriðja skiptið en hún var einnig haldin árin 2012 og 2014. Birna G. Konráðsdóttir er…Lesa meira

true

Fjölbýlishús við Vallholt tekur á sig mynd

Framkvæmdir hófust í júlí síðastliðnum við tólf íbúða fjölbýlishús á reitnum við endann á Vesturgötu á Akranesi, nálægt þar sem Ægisbraut, Vesturgata og Esjubraut mætast en sem telst vera Vallholt 5 samkvæmt skipulagi. Ágætis gangur hefur verið í þessu síðustu mánuði og önnur hæð hússins er nú komin á sinn stað. Blaðamaður Skessuhorns tók þessa…Lesa meira

true

Bæjarbúum boðið að skoða Bæringsstofu

Laugardaginn 23. október var bæjarbúum boðið að skoða Bæringsstofu í Grundarfirði sem hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin misseri. Ingi Hans Jónsson hefur haft yfirumsjón með framkvæmdunum en verið er að betrumbæta aðstöðu í Sögumiðstöðinni og þar á meðal Bæringsstofu. Allir stólarnir voru til að mynda bólstraðir upp á nýtt og inngangurinn færður svo eitthvað sé…Lesa meira