Freyja eftir að málun í Rotterdam. Ljósm. Landhelgisgæslan.

Siglufjörður verður heimahöfn Freyju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er hafinn undirbúningur fyrir heimsiglingu varðskipsins Freyju frá Rotterdam, en það bætist nú í flota Landhelgisgæslunnar. Skipið, sem smíðað var árið 2010 hefur undanfarin ár þjónustað olíuiðnaðinn, en mun eftir lagfæringar og málun verða siglt til Íslands og fá heimahöfn á Siglufirði. Áhöfn skipsins er mætt ytra og undirbýr heimsiglinguna. Áætlað er að skipið verði komið til Siglufjarðar 6. nóvember, ef allt gengur eftir. Varðskipið Freyja er sambærilegt varðskipinu Þór hvað varðar stærð og aðbúnað, en hefur yfir meiri dráttar- og björgunargetu að búa en Þór. Skipið er 86 metra langt og 20 metra breitt.\r\n\r\n„Með tilkomu Freyju í flota Landhelgisgæslunnar mun Landhelgisgæslan hafa á að skipa tveimur afar öflugum varðskipum, sérútbúnum til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ísland,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.",
  "innerBlocks": []
}
Siglufjörður verður heimahöfn Freyju - Skessuhorn