
Unnsteinn Guðmundsson og fjölskylda færðu Sögumiðstöðinni uppstoppaðan hrafn sem Unnsteinn stoppaði upp. F.v. Björg Ágústsdóttir, Tinna Unnsteinsdóttir, Ingi Hans Jónsson, Ari Unnsteinsson, Rúna Ösp Unnsteinsdóttir og Unnsteinn Guðmundsson. Ljósm. tfk.
Bæjarbúum boðið að skoða Bæringsstofu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laugardaginn 23. október var bæjarbúum boðið að skoða Bæringsstofu í Grundarfirði sem hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin misseri. Ingi Hans Jónsson hefur haft yfirumsjón með framkvæmdunum en verið er að betrumbæta aðstöðu í Sögumiðstöðinni og þar á meðal Bæringsstofu. Allir stólarnir voru til að mynda bólstraðir upp á nýtt og inngangurinn færður svo eitthvað sé nefnt. Síðasta laugardag var svo bæjarbúum boðið að skoða þar sem Bæringsstofa er tilbúin. Ingi Hans fór yfir framkvæmdirnar og svo var gestum boðið í kaffi eftir kynninguna.",
"innerBlocks": []
}