{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Almenn krafa um sóttkví fyrir þá sem hafa orðið útsettir fyrir kórónuveirusmiti hefur verið stytt úr sjö dögum í fimm, samkvæmt breytingum heilbrigðisráðherra á reglugerð að fengnum tillögum sóttvarnalæknis. Ennþá þarf að fá neikvæða niðurstöðu úr PCR prófi til þess að losna úr sóttkví, annars þarf að sæta sóttkví í 14 daga. Þá getur einangrun þeirra sem smitast hafa af kórónuveirunni farið niður í sjö daga sé um að ræða einkennalausan fullbólusettan einstakling eða einkennalaust barn fætt 2009 eða síðar. Þá getur einangrun farið niður í tíu daga hjá fullbólusettum einstaklingi eða barni fætt árið 2009 eða síðar, ef einkenni eru í rénum og viðkomandi hefur verið hitalaus í tvo sólarhringa fyrir afléttingu, og hjá óbólusettum og einkennalausum einstaklingi. Taka þessar breytingar gildi á morgun, föstudaginn 29. október.",
"innerBlocks": []
}