
Kári Viðarsson kynnti verkefnið sitt á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands 1. október sl. Ljósm. ssv.
Verkefnið Sjóböð í Krossavík fékk hæsta frumkvöðlastyrkinn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi settu á síðasta ári í gang verkefni um gerð viðskiptaáætlana. Var það unnið í samstarfi við Pál Kr. Pálsson ráðgjafa og fyrirtæki hans Skyggni ehf. Auglýst var eftir áhugasömum fyrirtækjum og einstaklingum til þátttöku og sóttu 14 aðilar um. Ákveðið var að velja fimm umsóknir til frekari vinnu og fengu þær allar 500 þúsund króna styrk til að vinna viðskiptaáætlanir undir leiðsögn Páls. Verkefnið var fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands.\r\n\r\nÁ vef SSV er greint frá því hverjir unnu viðskiptaáætlanir. Það voru: Skipavík ehf. - Víkingaskip úr trefjaplasti; Arnaldur Máni Finnsson - Styrkleikamiðstöð á Snæfellsnesi; Hraunsmúli ehf. - Ræktun jarðepla og þróun úrvinnsluafurða; Kári Viðarsson - Sjóböð í Krossavík; og Hulda Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Kristín Sverrisdóttir - Búkona, sölubíll og matvagn. Vinna við viðskiptaáætlanirnar hófst í nóvember á síðasta ári en hún fólst m.a. í markaðsgreiningu, framkvæmdaáætlun og kostnaðaráætlun.\r\n\r\nAllir þátttakendur luku vinnu sinni í sumar og sóttu þrír af fimm síðan um styrk í Uppbyggingarsjóð Vesturlands síðla sumars og fengu allar þrjár umsóknirnar styrki úr sjóðnum. Umsókn Kára Viðarssonar um Sjóböð í Krossavík fékk hæsta styrkinn, eða 3,7 milljónir króna.",
"innerBlocks": []
}