
Tarantúla.
Ekki í boði að flytja inn tarantúlur og snáka til landsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn lögreglu á einstaklingi sem grunaður er um að hafa flutt til landsins slöngur, snáka, eðlur og tarantúlur. Slíkt er eins og flestir þekkja með öllu óheimilt, hvort sem um villt eða tamin dýr er að ræða. Refsingar liggja við brotum á lögunum. Hægt er að sækja um undanþágu til slíks innflutnings. Tvö leyfi þarf til þess, annars vegar frá Matvælastofnun og hins vegar frá Umhverfisstofnun. Eini innflutningurinn á snákum og tarantúlum sem leyfður hefur verið til Íslands er heimild sem húsdýragarðurinn fékk fyrir 10-15 árum. „Matvælastofnun varar eindregið við ólöglegum innflutningi á dýrum. Með þeim hætti geta borist hættuleg smitefni til landsins sem ógna heilsu fólks og dýra,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}